
Rannsókn málsins hefur leitt í ljós að tveir menn höfðu átt við lokið á holræsinu aðeins nokkrum klukkustundum áður.
Á myndskeiðinu sést konan stíga af mótorhjóli á leið til vinnu og ganga eftir gangstétt á meðan hún horfir á farsímann sinn. Þegar hún stígur á lokið gefur það sig skyndilega og er engu líkara en að jörðin gleypi hana.
Ökumaður bifhjóls sem hafði skutlað henni á staðinn brást fljótt við og kom henni til aðstoðar. Konan var flutt á sjúkrahús þar sem hún fékk meðferð vegna áverka sem munu ekki vera lífshættulegir.
Sem fyrr segir sáust tveir menn eiga við lokið um nóttina og leikur grunur á að þeir hafi ætlað að stela því. Það tókst hins vegar ekki og reyndi annar þeirra að setja það á sinn stað en tókst ekki að festa það með öruggum hætti.