
Þetta er mat Tatiana Stanovaya, sem er greinandi og pólitískur ráðgjafi og stofnandi rússneska greiningarfyrirtækisins R.Politik.
Hún skrifaði á samfélagsmiðlum að rússneska elítan sé farin að ókyrrast á bak við tjöldin og að orðrómar séu uppi um yfirvofandi valdarán.
Hún sagði að nú sé pressan komin á það stig að margir í Rússlandi standi frammi fyrir nýjum raunveruleika. Óbreytt staða sé farin að ógna stöðu þeirra. Ef ekkert breytist verði erfitt að lifa af og jafnvel útilokað.
Hún skrifaði einnig að vaxandi efasemdir séu uppi um hvort Vladímír Pútín sé með einhverja áætlun varðandi stríðið í Úkraínu, meira að segja ef áætlunin sé bara að halda stríðinu gangandi.