Fréttir

Snorri opnar sig um fjaðrafokið: „Ósvífin og ótrúlega óheiðarleg og mjög sár brella“

Mynd
Snorri Másson. Skjáskot af Facebook.

Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, segir umræðuna sem skapaðist í vetur í tengslum við regnbogafánann hafa verið ósvífna og óheiðarlega, hvorki hann sé Miðflokkurinn vilji skerða réttindi samkynhneigðra. Snorri var gestur í þættinum Spjallið með Frosta Logasyni á Brotkasti þar sem hann ræddi ítarlega um ýmis mál, þar á meðal fjaðrafokið í kjölfar Kastljóssviðtalsins síðasta haust og umræðuna um flöggun hinseginfánans í skólum.

„Ég er búinn að vera í Miðflokknum um nokkurt skeið og ég hef aldrei, aldrei, rætt við neinn sem stendur gegn réttindum samkynhneigðra eða jöfnum rétti þeirra fyrir lögum. Ég hef ekki hitt þann mann,“ sagði Snorri. 

Snúið hafi verið út úr orðum hans. „Það var ósvífin og ótrúlega óheiðarleg og mjög sár brella af hálfu ákveðinna aðila og málsmetandi aðila sem leyfðu sér að ljúga því,“ sagði hann.

„Ég veit að pólitík er hörð og fólk skrumskælir afstöðu manns í pólitískum tilgangi. Það eru ákveðin augnablik þar sem maður er svona „hmm, núna þarf ég að skilja fólk sem þarf að verja sig eftir löglegum leiðum.“ Nú er ég að skilja fólk sem þarf að verja sig frá ærumeiðandi ummælum um lygar um eitthvað sem maður segir. Maður gengur nú ekki svo langt því maður vill ekki gera slíku fólki slíkt til geðs, sem að lýgur því upp á Miðflokkinn eða mig að maður sé á höttunum eftir sjálfsögðum réttindum samkynhneigðra. Það er ógeðslegt að heyra það.“

Ráðist að honum með ógeðfelldum hætti

Nefnir Snorri sérstaklega Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknarflokksins í borgarstjórn en Einar sagði í kjölfar Kastljóssviðtalsins fræga að Snorri hefði sært fólk með því að afneita tilvist þess. „Þarna er hreinlega verið að bjarga mannslífum,“ sagði Einar. 

„Maður getur ekki staðið hjá og þagað þegar þingmaður eins og Snorri, og ég ætla ekki að gera honum upp þá skoðun að hann hatist við einn eða neinn, en þegar menn gera sér það að pólitískum leik að særa fram tröllin eins og við höfum séð í umræðunni undanfarna daga þar sem ljótleikinn vellur yfir samfélagsmiðlana og öfgarnar brjótast fram, það vekur ótta hjá þessum hópi.“

Snorri segir Einar hafa grafið undan eigin trúverðugleika. „Svo eru svona týpur eins og Einar Þorsteinsson í Framsókn sem hefur ráðist að mér með ógeðfelldum hætti, svo það sé sagt, og hefur grafið undan sínum trúverðugleika,“ sagði Snorri. 

Samtökin 78 eigi ekki síðasta orðið

Snorri hefur þó skoðanir á flöggun hinseginfánans í skólum. „Þessi regnboga- og transfáni sem inniber margvíslega pólitíska merkingu eins og er alveg augljóst – þú sérð enga íhaldssama hægrimenn flagga þessu tákni, þú getur alveg gefið þér að þetta sé svona frjálslynt vinstritákn.“

Kjarni málsins sé að fáninn sé tákn um samstöðu skólasamfélagsins með jaðarsettum hópum. „Jaðarsettum hópum eins og transfólki eða fólki sem upplifir sig alveg út fyrir hið klassíska kynjakerfi. Það vakir alveg einlæglega fyrir mér að hjálpa börnum í viðkvæmri stöðu félagslega, eiga erfitt uppdráttar, erfitt með sjálft sig, er í krísu á unga aldri. Markmið mitt í þessari umræðu er vernda viðkvæman og brothættan hóp í samfélaginu. Ef að barn sem er mjög ruglað í ríminu segist vera hvorki strákur eða stelpa eða segist vera af öðru kyni en það fæddist líffræðilega, er þá nálgunin til að taka utan um barnið, að segja „já, þetta er rétt og nú þurfum við að koma þér í viðeigandi leiðréttingu, þú hefur fæðst í röngum líkama samkvæmt þessari hugmyndafræði“. Það er líka gagnrýnin, þessi fáni, eins og ég hef skilið hann, er að hluta til tákn fyrir það að þetta sé eina rétta nálgunin,“ sagði Snorri.

„Ég er alls ekki sammála því að Samtökin ’78 eigi síðasta orðið eða séu einu félagasamtökin sem er rætt við á þeim grunni.“

Hér má sjá klippu úr þættinum: