Fréttir

Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg í gærkvöldi

Mynd
Myndin sýnir hvar hrinan hefur staðið yfir. Mynd: Skjáskot earthquakes.is

Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg í gærkvöldi, um 50 kílómetra suðvestur af Eldey.

Í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands sem barst á sjöunda tímanum í morgun kemur fram að tæplega 50 skjálftar hafi mælst með hléum frá því að hrinan hófst í gærkvöldi klukkan 21:55.

Stærstu skjálftarnir til þessa hafa mælst 3,2 og 3,1 að stærð.

Bent er á að hrinur sem þessar séu algengar á flekaskilunum sem þarna liggja, en svipuð hrina varð síðast á þessu svæði þann 25. júlí síðastliðinn.