fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Fréttir

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 12. desember 2024 17:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 10. desember um að  síbrotamaður þarf að sæta gæsluvarðhaldi fram á nýtt ár, en þó ekki lengur en til þriðjudagsins 7. janúar 2025 kl. 16:00. Maðurinn mun því gista fangelsi yfir jólahátíðina og nýárið.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fór fram á gæsluvarðhald en þann 15. nóvember síðastliðinn var gefin út ákæra á hendur ákærða fyrir brot í 16 liðum sem talin eru varða við 233. gr., 244. gr., 254. gr. og 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk ákvæða laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og vopnalaga nr. 16/1998.

Brotin sem ákært er fyrir voru framin á tímabilinu frá 13. september 2022 til 19. september 2024. Ákærði lét þó ekki af brotum sínum og frá 19. september síðastliðnum á hann átta opin mál í kerfum lögreglu, auk þess að eiga eldra opið mál frá 4. maí.

Brotið frá 4. maí er líkamsárás eins og segir í úrskurði héraðsdóms:

Laugardaginn 4. maí sl. barst lögreglu tilkynning um yfirstandandi líkamsárás sem átti sér stað að […]. Brotaþoli var með sjáanlega áverka á andliti og handleggjum. Hann sagði X hafa komið inn í íbúð sína og ásakað sig um að skulda sér 200.000 krónur. Brotaþoli kvaðst hafa verið í rúmi sínu inni í svefnherbergi þegar X kom. Hafi X lamið hann ítrekað í höfuðið, hálsinn og fæturna með útdraganlegri kylfu. Við rúm í svefnherbergi og á gangi við svefnherbergið mátti sjá blóð. Samkvæmt áverkavottorði var brotaþoli með áverka á höfði og fótum sem vel geta komið heim og saman við högg með sljóum hlut svo sem kylfu. Ekki finnast lífshættulegir áverkar en höfuðhögg með sljóum hlut geta verið lífshættuleg vegna möguleika á höfuðkúpubroti og heilablæðingum. Ekki hefur verið tekin skýrsla af kærða í málinu. 

Brotin átta sem nýrri eru af nálinni eru eignaspjöll á bifreiðum, líkamsárás á strætisvagnabílstjóra, innbrot í verslun og þjófnaður á 30 hnífum, þjófnaður á kjöti, líkamsárás þar sem kærði kastaði glasi í andlit brotaþola, þjófnaður á fimm gleraugum, og að lokum atvik sem samkvæmt lýsingu virðist hafa átt sér stað í gistiskýli á vegum borgarinnar, þar sem kærði ógnaði vistmönnum, og gaf einum þeirra stuð í andlit og hendi með rafbyssu, náðist atvikið á öryggismyndavél.

Kærði hefur játað hluta málanna við skýrslutökur hjá lögreglu.

Er málunum lýst í úrskurðinum sem hér segir, en svo virðist sem eitt af málunum átta hafi gleymst:

Mál 007-2024-[…] Þann 19. september sl. var lögregla send að […] þar sem maður var að skemma bifreiðar. Á vettvangi benti vitni á X og sagði hann hafa skemmt bifreiðar með grjóti. Lögregla hafði afskipti af X. X kvaðst hafa skemmt bifreiðarnar í reiði og hann hafi notað grjót til að brjóta rúður í bifreiðunum. Á vettvangi mátti sjá skemmdir á fjórum bifreiðum. Í skýrslutöku hjá lögreglu kvaðst X vera sekur og vilja fá að greiða það sem hann skemmdi. 

Mál 007-2024-[…] Þann 23. október barst lögreglu tilkynning um mann í annarlegu ástandi sem hafði læst sig inni á salerni í verslun […] og neitaði að koma út. Síðar barst önnur tilkynning um mann sem væri að ganga í skrokk á […]. Brotaþoli sagði aðila hafa ráðist á sig og hlaupið í átt að […]. Hafi X kýlt hann nokkrum sinnum í hausinn og helt úr sprittbrúsa yfir brotaþola. Væri GPS tæki og posakerfið í strætónum laskað eftir átökin við X. Þá mátti sjá blóð úr X á skilrúmi í strætónum sem og á sprittbrúsanum. Lögregla hafði síðar afskipti af X í […] þar sem hann var grunaður um að hafa stolið úr verslun og sett vörur í bakpoka sinn. Hann var fluttur á lögreglustöð. Var hann með smellulásapoka með ætluðum fíkniefnum í munninum á sér. Efnið sagði hann vera amfetamín. Í skýrslutöku hjá lögreglu neitaði X að hafa kýlt strætóbílstjórann en viðurkenndi að hafa kastað sprittbrúsa í hann. Þá sagðist X ekki hafa helt spritti yfir strætóbílstjórann. Hann kvaðst ekki hafa stungið vörum inn á sig í […]. 

Mál 007-2024-[…] Þann 26. október sl. fékk lögregla ábendingu um að X hefði brotist inn í […] og að […] og stolið þaðan hnífum. Á vettvangi mátti sjá að búið var að brjóta gler í hurð í […]. Verslunin var mannlaus. Forráðamaður fyrirtækisins kom á vettvang og sagði að líklegast væru um 30 hnífar horfnir. Sjá má á upptökum úr öryggismyndavélum við […] aðfaranótt 26. október sl. að X virðist koma með hnífana í fanginu klæddur í rauðar buxur, úlpu, svarta skó og bláa derhúfu. Hann setur hnífana í poka. Hann kemur inn í gistiskýlið og skiptir um föt. Í skýrslutöku hjá lögreglu neitaði X sök. Honum var kynnt að poki merktur honum fannst í gistiskýlinu fullur af hnífum. Kvaðst hann ekki eiga hnífana. 

Mál 007-2024-[…] X er grunaður um að hafa 25. október sl. stolið kjöti að verðmæti kr. 4.951 úr verslun […] að […]. Í skýrslutöku hjá lögreglu kvaðst X ekki muna eftir þessu. 

Mál 007-2024-[…] Þann 1. desember sl. barst lögreglu tilkynning um að glasi hafi verið kastað í andlit á aðila í […] og brotaþoli væri með djúpan skurð. Brotaþoli sagði X hafa kastað glasi í andlitið á sér. Var brotaþoli með stóran skurð hægra megin á kjálka. Þrjú vitni kváðust hafa séð X kasta glasinu í andlitið á A. Í skýrslutöku hjá lögreglu neitaði X sök. 

Mál 007-2024-[…] X er grunaður um að hafa 4. desember 2024 sl. stolið fimm gleraugum að óþekktu verðmæti úr versluninni […] að […]. Í skýrslutöku hjá lögreglu neitaði X sök.

Mál 007-2024-[…] Aðfaranótt þriðjudagsins 10. desember 2024 barst lögreglu tilkynning um að X væri að ógna vistmönnum að […] í […] með rafvopni. Lögregla fór á vettvang og fann þar X og var hann handtekinn. Á X fannst hnífur og fjórar bláar ómerktar töflur. Á vettvangi var einnig brotaþoli B en hann kvað að X hefði vakið hann og krafist þess að hann greiddi sér skuld. X hafi verið með rafbyssu og gefið honum stuð í andlit og hægri hendi. Þá hefði hann tekið af sér 5.000 kr. Þá kvað vitnið C, starfsmaður […], að hann hafi séð X með rafbyssu og að hann hafi otað henni að B. Atvikið náðist á upptöku úr öryggismyndavél […]. Þar sést þegar X notar vopnið á B og blossi kemur frá vopninu. Í skýrslutöku hjá lögreglu játaði X að hann væri maðurinn á upptökunni og kvaðst hafa verið að rukka B um 5.000 kr. sem hann hafði lánað B fyrr um daginn. X kvaðst ekki hafa verið með rafvopn.

Á langan sakaferil að baki

Í greinargerð var krafan um gæsluvarðhald rökstudd með því að kærði á langan sakaferil að baki. Með vísan til brotaferils kærða að undanförnu er það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að kærði muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna. Taldi lögreglustjóri nauðsynlegt að honum yrði gert að sæta gæsluvarðhaldi svo færi gefist til að ljúka þeim málum sem til meðferðar eru og koma í veg fyrir áframhaldandi brotastarfsemi. Lögreglustjóri telur að ekki sé völ á vægari úrræðum en gæsluvarðhaldi eins og sakir standa. Þá sé ljóst, miðað við umfang þeirra mála sem rakin eru, að kærði muni hljóta óskilorðsbundinn fangelsisdóm verði hann sakfelldur fyrir þau brot sem honum eru gefin að sök, með vísan til sakaferils kærða. 

Fallist á gæsluvarðhald 

Dómari féllst á kröfuna um gæsluvarðhald og að þegar litið væri til ferils kærða og framangreindra upplýsinga um fjölda brota hans allt frá því í maí 2024 til dagsins í dag væri fallist á það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að kærði muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna. Nauðsyn bæri til að kærði sæti gæsluvarðhaldi meðan málum hans er ólokið hjá lögreglu. 

Krafðist farbanns sem vararefsingu

Kærði skaut málinu til Landsréttar og krafðist þess að úrskurður um gæsluvarðhald yrði felldur úr gildi, en til vara að honum yrði gert að sæta farbanni. Dómarar Landsréttar féllust ekki á það og staðfestu úrskurð héraðsdóms eins og áður sagði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Rauðblesótt tryppi gengur laust við þjóðveg 1 – Lögregla biður eigandann að gefa sig fram

Rauðblesótt tryppi gengur laust við þjóðveg 1 – Lögregla biður eigandann að gefa sig fram
Fréttir
Í gær

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vendingar í sérstæðu sakamáli frá árinu 2014 – Ákærður fyrir að frelsissvipta og misþyrma konu

Vendingar í sérstæðu sakamáli frá árinu 2014 – Ákærður fyrir að frelsissvipta og misþyrma konu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur saumar að sægreifunum: „Þennan leik er löngu tímabært að jafna“

Dagur saumar að sægreifunum: „Þennan leik er löngu tímabært að jafna“