fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Pressan

Lögregla rannsakar dularfulla holræsamenn – „Hvað er eiginlega í gangi?“

Pressan
Þriðjudaginn 2. júní 2026 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndbönd sem sýna dularfulla menn klifra upp úr holræsum New York-borgar hafa vakið gríðarlega athygli og nú hefur lögreglan látið málið til sín taka. Lögreglan sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fram kom að almenningi stafi ekki ógn af þessum dularfullu holræsamönnum.

Á myndbandinu má sjá hópa manna, sem ekki tengjast framkvæmdum á vegum hins opinbera, klifra upp úr holræmum nokkurra hverfa í Brooklyn. Mun þetta hafa átt sér stað í síðustu viku.

Lögreglan er nú að vinna með þá kenningu að þessi hópur sé að kemba holræsakerfið í leit að verðmætum sem mögulega hafi endað í skólpinu.

„Til að tryggja að almenningi stafi engin ógn af þessu sendi lögreglan í New York sérþjálfaða viðbragðsaðila niður í skólpkerfið til að ganga úr skugga um að þessir einstaklingar hefðu ekki skilið neitt vafasamt eftir sig – ekkert slíkt fannst. Umhverfisverndardeild borgarinnar, sem sér um skólpkerfið, fór einnig þangað niður og fann, að því er virðist, engar skemmdir á búnaði.“

Á einu myndbandinu, sem er tekið klukkan 2 að nóttu til á föstudaginn, má sjá mann í hvítri skyrtu og stuttbuxum lyfta holræsaloki. Eftir að lokinu var lyft komu sjö menn upp úr holræsinu en allir virtust þeir klæddir samfestingum eða hlífðarfatnaði. Mennirnir skiptu svo snögglega yfir í önnur föt.

Á öðru myndbandi má sjá mann lyfta holræsaloki á umferðarþungri götu í Brooklyn. Upp klifrar maður í rauðum bol og á eftir honum koma sex aðilar til viðbótar. Að minnsta kosti þrír þeirra virðast halda á skóflu og allir virðast vera með vasaljós á höfðinu.

Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins, en málið þykir nokkuð dularfullt enda liggur ekki fyrir hvað þessir aðilar voru að gera í holræsinu. Margir spyrja því á samfélagsmiðlum: Hvað er eiginlega í gangi?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Verjandi Michael Jackson og Scott Peterson nefnir stærstu eftirsjána – Þetta er það sem heldur fyrir honum vöku

Verjandi Michael Jackson og Scott Peterson nefnir stærstu eftirsjána – Þetta er það sem heldur fyrir honum vöku
Pressan
Í gær

Emily missti næstum forsjá vegna hársýnis – Sérfræðingar óttast að hún sé ekki ein

Emily missti næstum forsjá vegna hársýnis – Sérfræðingar óttast að hún sé ekki ein
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur segir að eitthvað sé að breytast í Rússlandi

Sérfræðingur segir að eitthvað sé að breytast í Rússlandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Eyjan sem enginn má heimsækja: Kölluð hættulegasti staður Bandaríkjanna

Eyjan sem enginn má heimsækja: Kölluð hættulegasti staður Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn sýnir að þær konur sem lifa lengst eiga þetta sameiginlegt

Ný rannsókn sýnir að þær konur sem lifa lengst eiga þetta sameiginlegt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er ástæðan fyrir að flugfreyjur nota rauðan varalit

Þetta er ástæðan fyrir að flugfreyjur nota rauðan varalit