fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Pressan

Hvað varð um sæði Jeffrey Epstein? Ný gögn vekja upp spurningar

Pressan
Þriðjudaginn 2. júní 2026 09:37

Ljósmynd af Epstein og Trump saman á heimili þess síðarnefnda í Flórída árið 1997.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skjöl frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu sem birt voru nýlega hafa vakið upp spurningar um áður óþekktan þátt í málefnum Jeffrey Epstein.

Samkvæmt skjölunum hafði Epstein um árabil geymt sæði hjá sæðisbankanum California Cryobank og gert ráðstafanir um meðferð sýnanna eftir andlát sitt.

New York Times fjallar um þetta og segir frá samningi sem Epstein undirritaði árið 2016 þar sem fram kom að stjórn yfir sæðissýnunum skyldi færast til dánarbús hans við andlát hans. Sæðisbankinn sjálfur hefði ekki ákvörðunarvald um framtíð sýnanna.

Upplýsingarnar komu fyrst fram opinberlega þegar skjölin voru birt á þessu ári en óljóst er hvort sýnin séu enn til eða hvar þau kunni að vera geymd.

Fyrirtækið CooperCompanies, sem nú á California Cryobank, hefur staðfest að það hafi engin sýni frá Epstein í vörslu sinni. Fyrirtækið hefur ekki viljað veita frekari upplýsingar og fulltrúar dánarbús Epsteins hafa ekki tjáð sig um málið.

Sérfræðingar í lögfræði telja að hugsanlegur ágreiningur um sýnin myndi líklega ráðast af lögum Bandarísku Jómfrúaeyja, þar sem dánarbú Epsteins er skráð.

Í frétt New York Times kemur einnig fram að málið hafi jafnframt vakið siðferðilegar spurningar um hvort frjósemisstofur eigi að taka við eða nota erfðaefni einstaklinga sem hafa verið dæmdir fyrir kynferðisbrot.

Fram kemur í umfjöllun New York Times að Epstein hafi haft metnað til að dreifa erfðaefni sínu víða. Samkvæmt frétt blaðsins hafði hann rætt hugmyndir um að gera fjölda kvenna barnshafandi á búgarði sínum í Nýju-Mexíkó.

Í tölvupóstum sem birtust meðal nýlegra skjala kemur einnig fram að Epstein hafi sýnt kynbótastefnu, svokallaðri eugenics, verulegan áhuga. Í einum tölvupósti lýsti hann yfir áhuga á klónun og ræddi jafnframt um siðferðileg álitaefni sem tengjast slíkri tækni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Verjandi Michael Jackson og Scott Peterson nefnir stærstu eftirsjána – Þetta er það sem heldur fyrir honum vöku

Verjandi Michael Jackson og Scott Peterson nefnir stærstu eftirsjána – Þetta er það sem heldur fyrir honum vöku
Pressan
Í gær

Emily missti næstum forsjá vegna hársýnis – Sérfræðingar óttast að hún sé ekki ein

Emily missti næstum forsjá vegna hársýnis – Sérfræðingar óttast að hún sé ekki ein
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur segir að eitthvað sé að breytast í Rússlandi

Sérfræðingur segir að eitthvað sé að breytast í Rússlandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Eyjan sem enginn má heimsækja: Kölluð hættulegasti staður Bandaríkjanna

Eyjan sem enginn má heimsækja: Kölluð hættulegasti staður Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn sýnir að þær konur sem lifa lengst eiga þetta sameiginlegt

Ný rannsókn sýnir að þær konur sem lifa lengst eiga þetta sameiginlegt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er ástæðan fyrir að flugfreyjur nota rauðan varalit

Þetta er ástæðan fyrir að flugfreyjur nota rauðan varalit