Ákæra Héraðssaksóknara í Dettifossmálinu, sem varðar smygl á miklu magni af amfetamínbasa með Dettifossi, flutningaskipi Eimskips, hingað til lands frá Bremerhaven í Þýskalandi, hefur nú verið afhent fjölmiðlum, en ákæran var gefin út í síðustu viku. Athygli vekur að nöfn sakborninga eru afmáð úr ákærunni, ásamt fleiri upplýsingum. Það hefur ekki tíðkast í stórum fíkniefnamálum. DV hefur ekki fengið svör við spurningu um hvað veldur nafnleyndinni.
Vísir hefur greint frá því að tveir sakborningar séu þeir Kastriot Pepaj og Sævar Hilmarsson og auk þeirra tveir ónefndir skipverjar á flutningaskipinu Dettifossi.
Í ákærunni eru fjórir menn ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa í mars og apríl, í félagi, staðið að innflutningi á rúmlega 14 lítrum af amfetamínbasa, sem hafði 47-48% styrkleika, ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, en efnin voru falin í fjórum Absolut vodkaflöskum í tösku um borð í gámaflutningaskipinu Dettifossi sem kom frá Bremerhaven í Þýskalandi til Íslands aðfaranótt mánudagsins 13. apríl 2026. Að morgni þess dags vísaði einn ákærða lögreglu á fíkniefnin sem voru á ótilgreindum stað (afmáð úr ákæru) í Kópavogi.
Skipulögðu innflutninginn í gegnum Signal
Einn ákærðu, kallaður Y í ákærunni, er sagður hafa komið að skipulagningu innflutningsins, meðal annars með samskiptum við ákærða A í gegnum samskiptaforritið Signal, auk þess sem mennirnir hittust nokkrum sinnum.
Dagana fyrir afhendingu fíkniefnanna og á afhendingardegi þeirra í Þýskalandi, mánudaginn 6. apríl, veitti ákærði Y meðákærða A upplýsingar og leiðbeiningar varðandi fyrirkomulag við afhendingu efnanna og móttöku þeirra, svo sem tímasetningar, móttökustað og lýsingar á þeim sem áttu að afhenda efnin, sem meðákærði A miðlaði áfram til meðákærðu Z og X. Tók ákærði Y á móti upplýsingum frá þeim sem meðákærði A miðlaði til baka. Um það leyti sem afhending fíkniefnanna fór fram í Þýskalandi móttók ákærði Y símtal úr þýsku símanúmeri frá óþekktum aðila í gegnum samskiptaforritið Whatsapp.
Ákærði A er sagður hafa komið að skipulagningu flutningsins eins og lýst er hér að ofan. Hann hafi fengið X og Z til að taka á móti fíkniefnunum í Bremerhaven, fela þau um borð í Dettifossi og flytja þau til Íslands. A gaf X og Z upplýsingar, fyrirmæli og leiðbeiningar, munnlega og í gegnum aðrar samskiptaleiðir, varðandi fyrirkomulag við afhendingu efnanna og móttöku þeirra, svo sem tímasetningar, móttökustað og lýsingar á þeim sem áttu að afhenda efnin. Einnig hafði A milligöngu um að miðla upplýsingum, fyrirmælum og leiðbeiningum frá Y til X og Z og miðla til baka upplýsingum frá þeim til Y, t.d. um staðsetningu þeirra í aðdraganda afhendingar efnanna í Þýskalandi.
X og Z tóku á móti fíkniefnunum í Bremerhaven í Þýskalandi, földu efnin um borð í Dettiflossu og fluttu þau til Ísland. Þeir tóku við upplýsingum, fyrirmælum og leiðbeiningum frá A og miðluðu upplýsingum til baka til hans varðandi fyrirkomulag við afhendingu og móttöku fíkniefnanna.
Krafist upptöku á munum og peningum
Tveir sakborninganna, A og Y, eru ákærðir fyrir vörslu fíkniefna á heimilum sínum. A er auk þess ákærður fyrir vopnalagabrot en skrautlegt vopnasafn fannst við húsleit hjá honum, vopn sem hann hafði ekki leyfi fyrir, m.a. loftbyssa, hnífar, piparúði, fimm kylfur með vasaljósi, hafnaboltakylfa, trékylfa með göddum og margt fleira.
Krafist er upptöku á miklu magni af fíkniefnum og lyfjum, auk ýmiss konar muna, þar á meðal farsímum og fartölvum. Einnig er krafist upptöku á þremur bifhjólum og einum BMW-bíl í eigu ákærðu.
Krafðist er upptöku á ýmum munum, m.a. peningatalningarvél og áhöldum til fíkniefnaneyslu.
Einnig er krafist upptöku á reiðufé, annars vegar 120 þúsund krónum og hins vegar 1850 evrum.