Alvarlegt umferðarslys varð austan við Vík í Mýrdal um kl. 16 á laugardag. Var um að ræða árekstur bifhjóls og bíls. Ökumaður bifhjólsins var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunnii á Suðurlandi og þar segir einnig:
„Ásamt lögreglu og tæknideild, sinntu sjúkraflutningar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Slökkvilið Mýrdalshrepps og þyrla Landhelgisgæslu útkallinu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kom einnig á vettvang.
Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn slyssins.“