fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Þrálátur kvilli sagður tengjast vinsælum megrunarlyfjum

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 27. nóvember 2025 15:30

Ozempic er vinsælt lyf. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lyf sem líkja eftir hormóninu GLP-1, þar á meðal Ozempic og Wegovy, hafa fleiri áhrif en að minnka líkamsþyngd. Auk vel þekktra aukaverkana á borð við ógleði, uppköst, hægðatregðu, niðurgang, höfuðverk og þreytu benda ný gögn til þess að notkun lyfjanna geti einnig tengst þrálátum hósta.

New York Post greinir frá þessu og vísar í niðurstöður nýrrar rannsóknar sem birtust í tímaritinu JAMA Otolaryngology.

Rannsóknin byggði á sjúkraskrám um 2 milljóna einstaklinga á árunum 2005 til 2025, en þar af höfðu 427.555 einstaklingar fengið GLP-1 lyf vegna sykursýki af tegund 2. Samanburðarhópurinn samanstóð hins vegar af 1,6 milljónum sjúklinga sem tóku önnur annarrar línu (e. second line) lyf við sykursýki.

Þegar notkun þessara lyfja var borin saman við aðrar meðferðir reyndust notendur GLP-1 lyfja vera tæplega 30% líklegri til að þróa með sér langvarandi hósta innan fimm ára. Langvarandi hósti er skilgreindur sem hósti sem stendur í átta vikur eða lengur.

Notendur GLP-1 lyfja reyndust einnig oftar greinast með bakflæði í vélinda (GERD), sem getur valdið þurrum hósta.

Í frétt New York Post er þess getið að höfundar rannsóknarinnar leggi áherslu á að niðurstöðurnar sýni aðeins tengsl, en ekki orsakasamhengi. Þeir segja þörf á frekari rannsóknum til að skýra betur hvaða líffræðilegu atriði gætu skýrt aukna áhættu á hósta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump