Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra þar sem Vilhelm Norðfjörð Sigurðsson var sakfelldur fyrir nauðgun og ítrekuð húsbrot gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni. Landsréttur hækkaði miskabætur til konunnar úr tveimur milljónum í þrjár milljónir króna.
Atvikin áttu sér stað árið 2022. Vilhelm var sakaður um að hafa þann 1. janúar það ár farið heimildarlaust inn á heimili konunnar og haft við hana samræði gegn vilja hennar þrátt fyrir að hún hafi látið hann vita að hún vildi það ekki og ítrekað beðið hann um að yfirgefa heimili sitt.
Hann var í annan stað sakaður um að hafa farið í heimildarleysi inn á heimili konunnar þann 12. janúar 2022 og ekki farið þaðan þrátt fyrir að hún bæði hann ítrekað um það. Hafi hann tekið í hár hennar, gripið um hendur hennar og snúið upp á þær, í tvígang slegið hana í rassinn og hótað henni með því að segja:
„Þegiðu og hlustaðu. Þú ert fífl. Ég slæ þig fokking fast utan undir ef þú fokking heldur ekki kjafti. Er þetta þakklætið fyrir að, horfðu á mig, horfðu á mig. Er þetta þakklætið fyrir það að ég sit fyrir framan dómstóla og játa milljón króna bótakröfu.“ „Á ég ekki bara að kýla þig einu sinni og þá erum við kvitt, ha?“
Hann var ennfremur sakaður um að hafa daginn eftir farið í óleyfi inn til konunnar og neitað að yfirgefa heimilið þrátt fyrir þrábeiðnir konunnar og slegið hana einu höggi með flötum lófa á vinstri kinn með þeim afleiðingum að hún hlaut roða á vinstri kinn.
Vilhelm neitaði sök og sagði átökin hafa verið dæmigerðar „haltu mér, slepptu mér“ kærustuerjur. Gögn úr öryggismyndavél á heimili unnustunnar vógu hins vegar þungt í sönnunarfærslu málsins og Vilhelm var sakfelldur.
Dóma héraðsdóms og Landsréttar í málinu má lesa hér.