Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu Helgu B Traustadóttur. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook.
Áslaug fór að heiman frá sér á Tálknafirði síðastliðinn sunnudag.
Þeir sem kunna að hafa séð til Áslaugar síðan á sunnudag eða hafa upplýsingar um ferðir hennar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Vestfjörðum í gegnum 112.
Þess má geta að bíll Áslaugar fannst í gær.