
Það var hiti eftir leik Þróttar Vogum og Kormáks/Hvatar í 2. deild karla í gær. Auðun Helgason, þjálfari fyrrnefnda liðsins, var afar ósáttur með Sigurð Bjarna Aadnegard í liði andstæðinganna að leik loknum og lét það í ljós. Á myndum og myndbandi að dæma tekur Auðun hann hálstaki, sem hann þó tekur fyrir. 433.is hefur fengið sendar myndir af Sigurði eftir leik þar sem hann sýnir áverka sína.
Myndband af þeirra samskiptum eftir leik hefur vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlum og var það til umræðu í hlaðvarpinu Þungavigtin í dag. Í skriflegu svari við fyrirspurn 433.is vegna málsins sagði Sigurður að málið væri komið á borð KSÍ.

„Ég get staðfest að hafa orðið fyrir árás eftir leikinn, sem leiddi til áverka á hálsi en að öðru leiti vísa ég til KSÍ, sem er úrskurðaraðili í aga- og úrskurðarmálum leikja á mótum sambandsins, en málið hefur verið sent þangað til frekari úrvinnslu,“ segir þar enn fremur, en sem fyrr segir tekur Auðun fyrir að um hálstak hafi verið að ræða.
Ofbeldi þjálfara Þróttar Vogum verður rætt í Vigtinni á eftir. pic.twitter.com/9VhI0vyS5x
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) June 1, 2026
Auðun segir ástæðu uppákomunnar þeirra á milli eftir leik vera að hann sé orðinn afar leiður á framkomu Sigurðar í leikjum, um uppsafnaðan pirring vegna þess hafi verið að ræða.
„Stemningin eftir leik var bara róleg. Ég þakkaði Dominic Furness, þjálfara Kormáks/Hvatar og við ræddum aðeins leikinn. Ég var alveg rólegur, enda ber ég mikla virðingu fyrir Dominic. Undir niðri var mér auðvitað heitt í hamsi yfir þessari framkomu. Svo fór ég til að taka í höndina á dómurunum en þá kemur hann á móti og mér fannst fullt tilefni til að stoppa hann. Ég þakkaði honum fyrir leikinn en tek utan um hann og segi hvað mér finnist, að framkoma hans væri algjörlega óboðleg. Það að fara fram með svona ofbeldi verður ekki liðið,“ sagði Auðun við 433.is.
„Ég held utan um hann og hann sagði mér að halda kjafti eða eitthvað, eins og menn segja í hita leiksins. Þá festist takkaskórinn hans í reimunum mínum og ég gríp fastar utan um hann, þetta var klaufalegt. Leikmenn koma svo á milli og þá verður einhver svona dramatík, en gott og vel. En ef hann er með einhverja áverka er það ekki því ég tók hann hálstaki. Ég tek algjörlega fyrir að hafa tekið hann hálstaki.“

Kornið sem fyllti mælin hvað hegðun Sigurðar varðar, frá hlið Auðuns, var þegar hann nefbraut leikmann hans í gær.
„Ég hef ekki þekkt hann í mörg ár en hef séð hann spila fótbolta í tvö ár. Mín upplifun er sú að hann fer reglulega í návígi þar sem boltinn er aukaatriði. Þetta horfir þannig við mér að áherslan er á leikmanninn en ekki boltann. Í gær gerðist það að Sigurður fer í andstæðinginn til að meiða en ekki gera atlögu að boltanum. Ég hef áður orðið vitni að ljótum brotum hjá honum og því miður kemst hann upp með. Í gær komst hann enn einu sinni upp með ofbeldi sem á ekki að viðgangast á fótboltavellinum.
Hann er ekki eingöngu inni á vellinum til að meiða fólk en reglulega fer hann í návígi til þess að meiða andstæðinga sína. Það gerist reglulega. Í eðli sínu er hann bara þessi leikmaður. Hann fer ekki heiðarlega í návígi eða skallaeinvígi til að vinna þau. Hann fer upp í þetta návígi með olnbogann uppi til að meiða manninn, hann á ekki séns í boltann. Þetta gerir hann líka í 2-3 önnur skipti. Það er ekkert annað en ofbeldi og á ekki heima á fótboltavellinum. Vissulega verða óhöpp og menn kannski fara í návígi og meiða menn. En þessi ágæti drengur er bara búinn að komast upp með svona allt of oft.“
Auðun segir miður að VAR sé ekki til að dreifa í íslenska boltanum en hvetur dómara til að taka fast á leikmönnum sem fara að fullu afli í andstæðinginn til að meiða. Dómarar verði að vernda leikmenn sem verða fyrir ofbeldi inn á vellinum.
„Dómarinn í gær sá þetta ekki nógu vel. Hann stóð sig að öðru leyti ágætlega. Hann áttar sig ekki á þessu. Maður þarf líka að hafa ákveðið innsæi og leikskilning til að átta sig á því þegar menn hafa það að leiðarljósi að fara harkalega í menn. Þegar maður liggur í blóði sínu nefbrotinn má alveg velta fyrir sér hvort dómarinn ætti ekki að leyfa honum að njóta vafans. Dómarinn gerði það því miður ekki í gær.“
Auðun varaði sína leikmenn við Sigurði fyrir leikinn í gær.
„Ég er auðvitað þakklátur mínum leikmönnum fyrir að halda haus. Meira að segja þessi sem nefbrotnaði kláraði leikinn. Auðvitað átti ég ekki að bjóða honum upp í dans. Það sýnir náttúrulega eðli þessa manns að hann sé nú orðinn fórnarlamb. Þetta sýnir auðvitað að það er oft þannig í þessum fótbolta að þeir sem eru gerendur fara að leika sig sem einhverja píslarvotta. Þetta er búið og gert og ég er auðvitað ekkert stoltur af því að vera að blanda mér í svona. En þetta var kannski ekki alveg að ástæðulausu.“
Auðun kvaðst að lokum þakklátur fyrir að fá að tjá sig um málið.
„Ég skora á þá sem virkilega láta málið sig varða að horfa á seinni hálfleikinn og þá sérstaklega ofbeldisfulla háttsemi Sigurðar. Fólk getur beðið Sigurð um leikinn en það er ljóst að hann er með afrit af leiknum fyrst hann sendir það sem hentar honum til fjölmiðla,“ sagði hann að endingu.