fbpx
Miðvikudagur 10.desember 2025
Pressan

Reikna með að minnst ein milljón utankjörstaðaratkvæði verði úrskurðuð ógild

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 17. október 2020 08:30

Færði Biden Trump gjöf með þessu?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miklu fleiri Bandaríkjamenn munu kjósa utan kjörfundar, bréfleiðis, í kosningunum þann 3. nóvember en að jafnaði í forsetakosningum þar í landi. Ástæðan er heimsfaraldur kórónuveirunnar. Donald Trump, forseti, hefur lýst yfir efasemdum um slíkar atkvæðagreiðslur og segir þær ávísun á kosningasvindl en hefur ekki sett fram neinar sannanir til stuðnings þessum ummælum. Kjörstjórnir vísa þessu á bug og segja ekki meiri líkur á kosningasvindli en þegar kosið er á hefðbundinn hátt.

Niðurstaða nýrrar rannsóknar sem USA Today og Columbia Journalism Investigation, ásamt fleirum, gerðu sýnir að væntanlega munu mörg bréfatkvæði ekki gilda þegar talið verður.

Ástæðan getur verið að vitni hafi ekki skrifað undir, að atkvæðið hafi ekki verið í opinberu umslagi eða óvissa um undirskrift. Þetta eru algengustu ástæðurnar en þær geta verið fleiri. Það eykur á umfangið að reiknað er með að margir þeirra sem kjósa í ár séu að kjósa í fyrsta sinn.

Miðað við reynsluna af fyrr forsetakosningum gæti svo farið að rúmlega ein milljón bréfatkvæða telji ekki með í úrslitunum ef miðað er við að helmingur kjósenda kjósi bréfleiðis. Talan gæti orðið rúmlega 1,5 milljónir atkvæða ef þrír fjórðu hlutar kjósenda kjósa bréfleiðis.

Ef síðari talan verður að veruleika þýðir það að 185.000 bréfatkvæði munu ekki telja með í Flórída, Norður-Karólínu, Pennsylvania og Wisconsin en þessi ríki eru lykilríki og mikilvægt að sigra í þeim til að fá lyklavöldin að Hvíta húsinu.

Samkvæmt frétt MSN eru þetta bara áætlanir. Ef um tvö prósent bréfatkvæða verði úrskurðuð ógild þá þýði það 2,15 milljónir atkvæða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Banaslys í Mosfellsbæ

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Laundóttir Pútíns stöðvuð í París: „Fyrir þremur vikum drap faðir þinn bróður minn“

Laundóttir Pútíns stöðvuð í París: „Fyrir þremur vikum drap faðir þinn bróður minn“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hjónin lifðu í miklum lúxus í Dúbaí: Myrt á hrottalegan hátt eftir misheppnaða fjárkúgun

Hjónin lifðu í miklum lúxus í Dúbaí: Myrt á hrottalegan hátt eftir misheppnaða fjárkúgun
Pressan
Fyrir 6 dögum

Leikstjóri fékk milljarða frá Netflix til að gera þætti – Er nú sakaður um að hafa farið á stórbrotið eyðslufyllerí í staðinn

Leikstjóri fékk milljarða frá Netflix til að gera þætti – Er nú sakaður um að hafa farið á stórbrotið eyðslufyllerí í staðinn
Pressan
Fyrir 6 dögum

Kjörinn fulltrúi Repúblikana sökuð um að hafa rænt unglingsdóttur kollega eftir að hann neitaði að sofa hjá henni

Kjörinn fulltrúi Repúblikana sökuð um að hafa rænt unglingsdóttur kollega eftir að hann neitaði að sofa hjá henni