
Í nýju myndbandi sem Sósíalistaflokkurinn birtir á samfélagsmiðlum má sjá oddvita flokksins í Reykjavík Silju Sóleyju Birgisdóttur verða yfir sig hissa á ummælum Bjarna Guðjónssonar, frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnar. Vildi Bjarni meina að þó nokkrar líkur séu á því að töluvert sé um það að leigjendur í íbúðum Félagsbústaða séu í raun og veru með of háar tekjur til að mega leigja slíkar íbúðir.
Myndbandið er stutt en það er tekið á nýlegum pallborðsumræðum Leigjendasamtakanna. Silja var fulltrúi Sósíalistaflokksins í umræðunum en Bjarni mætti fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins en hann er í öðru sæti á lista flokksins.
Myndbandið er stutt og byrjar þegar Bjarni er í miðjum klíðum að tala með hljóðnema í hönd. Myndbandið hefst í miðri setningu hjá Bjarna en það heyrist að hann er að tala um Félagsbústaði. Í næstu setningu segir Bjarni:
„Þar grunar okkur að sé dálítið stór hluti fólks sem er hugsanlega kominn yfir tekjumörk og þannig að það er hægt að taka dálítið hratt til í því.“
Þegar hér er komið við sögu beinist myndavélin að Silju og á henni má sjá mikinn undrunarsvip yfir ummælum Bjarna sem heldur áfram:
„og koma þá réttum aðilum inn í það kerfi.“
Lokar þá Silja augunum í skamma stund og hristir hausinn, bersýnilega furðu lostin og grípur síðan fyrir munn sér á meðan Bjarni bætir við:
„Það væri til dæmis gaman að skoða það þegar við komumst til áhrifa í borginni.“
Myndbandinu lýkur með þessum orðum og ekki er ljóst hvort Bjarni bætti einhverju við eða hvort hann hafi nefnt hvað hann sér fyrir sér til að renna stoðum undir slíkar fullyrðingar eða hvort til staðar séu einhver gögn sem bendi til þess að ákveðinn hluti leigjenda Félagsbústaða sé of tekjuhár til að mega leigja þar.
Félagsbústaðir leigja út íbúðir sem ætlaðar eru fjölskyldum og einstaklingum undir tilteknum eigna- og tekjumörkum, auk íbúða fyrir aldraða og fólk með fötlun.
Samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði, íbúðir Félagsbústaða eru skilgreindar sem húsnæði af því tagi, eru tekjumörk 7.874.000 krónur, á ári, fyrir einstakling en 11.025.000 krónur fyrir hjón og sambúðarfólk. Þá reiknast 1.969.000 krónur fyrir hvert barn eða ungmenni yngra en 20 ára sem er á framfæri viðkomandi. Þá reiknast 984.500 fyrir hvert barn eða ungmenni yngra en 20 ára sem er í umgengni hjá umsækjanda. Tekjumörk eru miðuð við meðaltal tekna síðastliðinna þriggja ára.
Þetta þýðir að einstaklingur sem sækir um má ekki vera með meira en 656.166 krónur í tekjur á mánuði, að meðaltali síðustu þrjú ár og þá er væntanlega átt við tekjur fyrir skatt.
Eignamörk er 8.499.000. krónur en umsækjandi er ekki gjaldgengur ef hann á fasteign.
Hægt er að sækja um undanþágur frá tekjuviðmiðunum þegar tekjur umsækjanda síðastliðin þrjú ár séu minna en 15 prósent yfir tekjuviðmiði og umsækjandi eigi í miklum félagslegum erfiðleikum sem hafi leitt til lækkandi tekna.
Viðmiðin eru endurskoðuð árlega. Ekki er að sjá ne að neitt ákvæði sé um það í reglunum að staða leigjenda félagslegs húsnæðis breytist ef þeir kunna að fara af einhverjum ástæðum yfir tekju- eða eignamörk á leigutímanum.
Með myndbandinu á Facebook-síðu Sósíalistaflokksins er skrifað:
„Hvað lét Silju missa andlitið á pallborði Leigjendasamtakana? Og hvað ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að gera við Félagsbústaði? Bjarni Eggerts Guðjónsson, 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, ýjaði að því að fátækasta fólk Reykjavíkur sé að þéna of mikið til að mega búa áfram í Félagsbústöðum á pallborði Leigjendasamtakanna. Silja Sóley var eðlilega ekki sátt. Sósíalistar munu standa vörð um Félagsbústaði og stórefla á meðan að Sjálfstæðisflokkurinn hyggst grafa undan íbúum.“