fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Pressan

Undirbúa sig undir fjöldajarðsetningar á Gotlandi

Pressan
Sunnudaginn 3. maí 2026 11:30

Sænskir hermenn við gæslu á Gotlandi. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef stríð eða aðrar hörmungar skella á þarf að vera hægt að jarðsetja 5% af íbúum sænsku eyjunnar Gotlands. Það eru um 3.000 manns.

Gotland er í Eystrasalti og gera viðbúnaðaráætlanir ráð fyrir að ef allt fer á versta veg þurfi að vera hægt að jarðsetja um 3.000 eyjaskeggja.

Bimbi Ollberg er prófastur í Visby sókn á Gotlandi og einnig stríðs- og neyðaraðgerðastjóri fyrir alla eyjuna.

Í samtali við TV2 sagði hann að hann beri ábyrgð á stjórn neyðaraðgerða og undirbúnings neyðaraðgerða.

Um 60.000 manns búa á Gotlandi, stærsti hlutinn í Visby, sem er stærsti bær eyjunnar.

Í Visby á að vera hægt að taka við 1.500 látnum á sama tíma. „Já, í einu. Þetta eru 5% af íbúum Visby. Við miðum við að við eigum að geta tekið við og meðhöndlað 5% íbúanna,“ sagði hann.

Af praktískum ástæðum er því haldið leyndu hvar grafstæðin eru. Bimbi sagði að ástæðan sé að ef staðsetningin verði gerð opinber muni fólk flykkjast þangað ef eitthvað gerist. Fólk muni auðvitað leita að týndum ættingjum sínum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Fyrir 2 dögum

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“