fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
Pressan

Ætla að kortleggja jarðvarma á Grænlandi

Pressan
Sunnudaginn 3. maí 2026 07:30

Uunartoq lindin. Mynd:Michael Kühl/Kaupmannahafnarháskóli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við vitum öll að Ísland er þekkt út um allan heim sem land jarðvarmans, land hveranna og heitra lauga. En fáum hefur eflaust dottið í hug að slíkar auðlindir sé að finna á Grænlandi.

Kortlagning á heitum lindum á Grænlandi stendur yfir og er hún gerð í samvinnu grænlensku náttúrufræðistofnunarinnar, Kaupmannahafnarháskóla og dönsk/grænlensku jarðfræðistofnunarinnar.

Vísindamennirnir hafa nú þegar aflað upplýsinga um 382 heitar uppsprettur á Grænlandi að sögn Ritzau.

Heitu lindirnar geta haft áhrif á ferðamannaiðnaðinn og hugsanlega orðið hitagjafi eins og hér á landi segir í fréttatilkynningu frá vísindamönnunum sem vinna að rannsókninni. Þeir segja að þeir hafi safnað saman upplýsingum og vitneskju sem hafi fram að þessu verið á víð og dreif í allt að 100 ára gömlum gögnum.

Þetta er allt frá gömlum leiðangurslýsingum, gróðurrannsóknum til gervihnattarmynda og staðarnafna á borð við Uunartoq og Puilasow sem þýða „heit lind“, og „lind“ sagði Eva Bendix Nielsen, aðalhöfundur rannsóknarinnar.

Ein þekktasta heita lindin á Grænlandi er Uunartoq-lindin sem er í suðurhluta landsins. Þar er vatnið 38 til 40 gráður og myndar hratt náttúrulegar laugar þar sem hægt er að baða sig. Svæðið er vinsælt meðal heimamanna og ferðamanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Dularfullur fundur í grískum helli

Dularfullur fundur í grískum helli
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Flestir nota USB-tengið bara fyrir rafmagn en það getur miklu meira en það

Flestir nota USB-tengið bara fyrir rafmagn en það getur miklu meira en það
Pressan
Í gær

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín
Pressan
Í gær

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt