

Söng- og útvarpskonan Erna Hrönn Ólafsdóttir segist aldrei hafa liðið betur en í dag eftir að hafa gengið í gegnum erfiða tíma á undanförnum árum. Hún ræðir opinskátt í viðtali við hlaðvarpið Popparasögur um lífsbruna, sjálfstraustsleysi og tímabil sem var henni mjög erfitt.
„Ég var komin á þann stað að mig langaði ekki að vera til lengur,“ segir Erna Hrönn, sem hefur um árabil verið áberandi í íslensku tónlistarlífi.
Frásögn Ernu Hrannar hefur vakið athygli og fellur að aukinni umræðu um andlega heilsu í samfélaginu. Hún talar um mikilvægi opinnar umræðu um slík málefni og bendir á að reynslusaga hennar geti haft áhrif á aðra sem standa frammi fyrir svipuðum áskorunum. Að hennar sögn hefur hún unnið markvisst í eigin líðan, meðal annars með því að leita sér aðstoðar, fá greiningu og taka ákvarðanir sem snúa að heilsu hennar. Hún segir þá vinnu hafa skilað sér í auknu jafnvægi og betri líðan.

Ferill Ernu spannar meira en tvo áratugi og hefur hún meðal annars tekið þátt í fjölda laga í Söngvakeppni sjónvarpsins og farið tvisvar í Eurovision. Þrátt fyrir það segir hún að hún hafi lengi staðið í vegi fyrir eigin velgengni. „Að leyfa bara sjálfri mér svolítið að skína og stíga svolítið fram í sviðsljósið, ekki endilega fela mig alltaf á bak við og bakka aðra upp svo þeir líti vel út heldur bara fá kannski bara að eiga sviðsljósið,“ segir hún.
Hún rifjar einnig upp Eurovision-ævintýrið árið 2009 þegar Ísland náði góðum árangri og lýsir stemningunni þegar stig fóru að berast. „Það er ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu,“ segir hún. Að keppni lokinni tók hins vegar hversdagsleikinn við. „Svo erum við þarna í þessari móttöku á Arnarhóli og maður kemur heim með brosið hringinn. Svo bara daginn eftir ertu farin að setja í þvottavél,“ segir hún.
Erna segir íslenskt tónlistarlíf blómstra um þessar mundir, þar sem aukið samstarf og fjölbreytni setji svip sinn á senuna. Hún hefur sjálf fundið nýjan kraft á sviði, meðal annars með hljómsveitinni Hr. Eydís.
„Fólk sem er að koma á giggin okkar, tónleikapartíin eins og við kjósum að kalla þau, það eru allir „all in“ að vanda sig. Þá einhvern veginn mætir fólk bara í búningum. Þau klæða sig upp og það eru fyrirpartí og þetta er bara orðið að einhverju trendi. Þetta er bara ótrúlega skemmtilegt.“
Erna Hrönn segist standa á ákveðnum tímamótum núna.
„En svo kemur þessi tímapunktur þar sem ég þarf virkilega að velta fyrir mér, hver verður mín arfleifð, hvað langar mig að sitji eftir? Þannig að ég er svolítið þar núna,“ segir Erna Hrönn sem stefnir á að gefa út tónlist undir eigin nafni á næstunni. „Vinir mínir hafa samið fyrir mig lög og komið með lagahugmyndir sem að í raun og veru þarf bara að taka upp og gera. Þannig að það er margt fram undan og það er það sem gerir þetta skemmtilegt,“ segir Erna Hrönn.