fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Pressan

Tveir táningar grunaðir um leigumorð

Pressan
Þriðjudaginn 5. maí 2026 06:30

Sænskir lögreglumenn við störf. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir piltar, 15 og 16 ára, hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um að hafa framið morð í Norrköping. Drengirnir eru einnig grunaðir um að hafa framið morð gegn greiðslu í Osló.

Málið er það nýjasta í röð mála af þessu tagi í Svíþjóð þar sem börn og unglingar hafa verið fengin af glæpasamtökum til að fremja óhæfuverk þar á meðal morð. Börnunum er oft heitið greiðslu sem í mörgum tilfellum er ekki staðið við en einnig eru þau beitt kúgunum til að þau láti verða af því að fremja ódæðin. Oftast er lagt fyrir þau að myrða meðlimi annarra glæpagengja. Yfirvöld hafa brugðist við meðal annars með áformum um að lækka sakhæfisaldurinn.

Í máli umræddra tveggja drengja, sem SVT greinir frá, var maður á þrítugsaldri skotinn utandyra í Norrköping síðasta fimmtudagskvöld. Hann lést af sárum sínum í gærkvöldi. Piltarnir voru raunar handteknir áður en maðurinn lést.

Yngri pilturinn hefur játað aðild sína að málinu en ber við sjálfsvörn. Piltarnir hafa báðir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald.

Þeir eru einnig grunaðir um að hafa orðið öðrum manni að bana í Osló í síðustu viku. Sá maður átti sér sögu um þátttöku í glæpastarfsemi. Norsk yfirvöld grunar að um leigumorð hafi verið að ræða og vinna nú norska og sænska lögreglan saman að rannsókn málsins.

Sænsk yfirvöld vilja á þessu stigi ekki staðfesta að drengirnir séu grunaðir um tengsl við glæpasamtök og heldur ekki að maðurinn, sem þeir eru grunaðir um að myrða í Norrköping hafi verið grunaður um slíkt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Fyrir 2 dögum

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“