fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Foreldrar beðnir um að heimila barnaníðingi að þjálfa börnin þeirra

Pressan
Sunnudaginn 3. maí 2026 17:30

Foreldrar voru beðnir um leyfi til að barnaníðingur þjálfaði börnin þeirra í hafnarbolta.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þar til nýlega var Thomas Whiteman, kallaður Tommy, skráður þjálfari skólaliðsins THESA Riders í Texas sem keppir í hafnarbolta. Hann er 46 ára, fyrrum atvinnumaður í bandarísku hafnarboltadeildinni.

Hann er á skrá yfirvalda í Texas yfir kynferðisbrotamenn. Hann var dæmdur fyrir að eiga í samskiptum við börn í því skyni að lokka þau til kynferðislegra athafna og fyrir að senda þeim klámfengið efni. Metro skýrir frá þessu og segir að meðal fórnarlamba hans hafi verið 14 ára stúlka.

THESA eru kristileg samtök sem veita börnum í Fort Worth, sem ganga ekki í skóla en er kennt heima, tækifæri til að stunda og keppa í íþróttum.

Samtökin sendu beiðni til foreldra barnanna með skráningargögnum um að þeir myndu heimila Tommy að þjálfa börnin þeirra. Ekki var getið um skráningu hans á lista yfir kynferðisbrotamenn.

Í beiðninni stóð að Tommy gæt deilt af reynslu sinni af hinum dökku hliðum íþrótta eftir atvinnumannsferil hans. „Hann, hæfileikamikill íþróttamaður, eyddi mörgum árum í að lofsama sjálfan sig og næra hold sitt. Drottinn var svo miskunnsamur að leyfa heiminum að halda honum og bjarga honum frá syndum sínum á mjög dramatískan hátt, sem var samt nauðsynlegt.  Tommy notar nú tíma sinn til að fræða unga menn og hjálpa þeim að komast í gegnum þessa snúnu menningu með aðstoð Krists.“ Stóð meðal annars í beiðninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þessa hluta af kjúklingum á ekki að borða

Þessa hluta af kjúklingum á ekki að borða
Pressan
Í gær

Rússar flýja vígvöllinn – „Það var útilokað að hægt væri að lifa þessa orustu af“

Rússar flýja vígvöllinn – „Það var útilokað að hægt væri að lifa þessa orustu af“
Pressan
Í gær

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan
Pressan
Í gær

Á að taka D-vítamín á morgnana eða kvöldin?

Á að taka D-vítamín á morgnana eða kvöldin?