fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Allt á suðupunkti í Kópavogi í aðdraganda kosninga: „Þetta heitir misbeiting valds“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. maí 2026 08:00

Elísabet Sveinsdótti bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í Kópavogi með köku líkt og þær sem flokkurinn fór með í leiksskóla bæjarins í gær.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elísabet Sveinsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, kom í gær með köku í einn af leikskólum bæjarins, sem samkvæmt reglum bæjarskrifstofunnar kann að hafa verið óheimilt. Elísabet birti færslu á Facebook með mynd af kökunni. Andri Steinn Hilmarsson, einnig bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, birti sömuleiðis mynd af sér á samfélagsmiðlum með köku við leikskóla.

„„Elísabet, viltu lofa mér því að fara ekki til baka í það sem var? Þessi breyting gjörbreytti lífi okkar.“ Þetta sagði starfsmaður leikskóla við mig í dag þegar við heimsóttum leikskóla og þökkuðum fyrir gott samstarf við innleiðingu þessa magnaða módels. Það sem stendur upp úr er að þessi breyting hafði ekki bara áhrif á starfsfólk heldur líka foreldra leikskólabarna, já og ömmur og afa líka! Það er ótrúlegt að „einhver“ (m.a. forsætisráðherra) vilji gera þetta að pólitísku bitbeini. Þetta er ekki hugmynd úr ráðuneyti heldur lausn sem varð til hjá fólkinu sjálfu þegar álagið var orðið of mikið. Eina sem við gerðum var að hlusta,“

segir Elísabet í færslu sinni og taggar Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra, Andra Stein Hilmarsson, Hjördísi Ýr Johnsen og tvo aðra bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks. Færslunni var síðar eytt.

Í lok apríl braut Elísabet kosningalög með því að mæta á utankjörfundarstað hjá Sýslumanninum í Kópavogi, greiða atkvæði og sýna kjörseðilinn í myndbandi, sem er óheimilt samkvæmt kosningalögum. Þeirri færslu var sömuleiðis eytt sama dag og hún birtist.

Sjá einnig: Sjálfstæðismenn í Kópavogi brutu kosningalög – Málið komið á borð kjörstjórnar

Fullyrti að frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins væru ekki að ónáða starfsfólk – Á sama tíma voru kökuheimsóknir

Kosningapallborð fór fram á Vísi í gær, Baráttan um Kópavog. Þar vakti oddviti Viðreisnar, María Ellen Steingrímsdóttir, máls á því að allar stofnanir Kópavogs hefðu meinað frambjóðendum Viðreisnar að koma í heimsókn til þeirra. Samfylkingin hefur fengið sömu svör frá stofnunum Kópavogs, að það hafi komið fyrirmæli frá embættismönnum Kópavogsbæjar að taka ekki á móti neinum framboðum í heimsókn í aðdraganda kosninganna.

Svar sem fulltrúar Viðreisnar fengu frá starfsmanni stofnunar í Kópavogi sem vildi ekki koma undir nafn er hér að neðan. Samkvæmt upplýsingum DV fullyrti Pálmi Þór Másson, bæjarritari Kópavogsbæjar, að þessi ákvörðun, um að meina pólitískum framboðum að heimsækja stofnanir Kópavogs, hafi verið tekin á framkvæmdastjórafundi Kópavogsbæjar. Þar sitja sviðsstjórar Kópavogsbæjar, bæjarstjóri og bæjarritari.

Í pallborðinu á Vísi fullyrti Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri að hún hafi ekki komið að þessari ákvörðun. Í sama pallborði sagði Ásdís að frambjóðendur Sjálfstæðisflokks í Kópavogi séu ekki að ónáða starfsfólks bæjarins á kaffistofum þeirra, þrátt fyrir að sama dag hafi fulltrúar Sjálfstæðisflokks með kökur merktar flokknum og bæklinga sem auglýsa framboðið mætt á kaffistofur leikskóla Kópavogsbæjar.

Horfa má á pallborðið hér. Umræður um heimsóknir í stofnanir bæjarins byrjar á mínútu 1.27.12.

Færsla Elísabetar með kökuna vakti að sjálfsögðu mikla athygli þann tíma sem hún var í birtingu.

„Þetta er konan sem braut nýverið kosningalög. Hér virðist hún nú vera að brjóta reglur líka! Er hægt að toppa þetta? Á þessari mynd er staðfest að aðeins Sjálfstæðisflokkurinn fær heimild til þess að heimsækja stofnanir. Við höfum gögn og fjölmarga tölvupósta frá forstöðumönnum stofnana í Kópavogi sem segja að frambjóðendum sé ekki heimilt að heimsækja stofnanir. Sú skipun kemur frá bæjarskrifstofum. Það má ekki heimsækja skóla, ekki leikskóla, ekki sundlaugar, ekki einu sinni bókasafnið. Bara alls engar stofnanir! Sjálfstæðisflokkurinn má bara!“ segir Theodóra S. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi Viðreisnar.

„Einræði XD er það sem þau vilja,“ segir Jón Ögmundsson lögmaður, sem situr í yfirkjörstjórn Kópavogs fyrir kosningarnar 16. maí.

„Fékk í dag köku í skólanum í boði xd. Fór svo og hlustaði á pallborðið á Vísi þar sem fulltrúar framboða kvörtuðu yfir að fá ekki að fara í heimsóknir. Ásdís sagði að það væri bannað. Enginn flokkur fengi að gera það. Ekki einu sinni xd,“ segir Hreiðar Oddsson varabæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar í Kópavogi.

„Þetta heitir misbeiting valds og við þekkjum hana vel frá sama flokki hér í Hafnarfirði“, segir Óskar Steinn Ómarsson, sem skipar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Theodóra svarar honum: „Já þegar það fréttist að Viðreisn sé búið að fá heimild til að koma þá er heimildin afturkölluð! En þegar það á við XD þá er það i lagi! Auðvitað er verið að misbeita valdi!“ Birtir hún skjáskot með svari sínu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg