fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
Pressan

Bílstjórinn dæmdur til dauða

Pressan
Miðvikudaginn 6. maí 2026 07:31

Athena var myrt í lok nóvember 2022. Hún var 7 ára.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kviðdómur í Texas komst að þeirri niðurstöðu í gærkvöldi að Tanner Horner skyldi hljóta dauðadóm fyrir morðið á sjö ára gömlu Athena Strand árið 2022.

Horner, sem sinnti akstri fyrir FedEx á þeim tíma, játaði morðið þegar réttarhöld hófust í síðasta mánuði.

Athena hvarf frá heimili föður síns í Paradise í Texas að kvöldi 30. nóvember 2022 þar sem hún hafði verið úti að leika sér. Þegar stjúpmóðir hennar fór að svipast um eftir henni fann hún pakka frá Walmart á lóðinni sem innihélt Barbie-dúkkur sem Athena átti að fá í jólagjöf.

Sjá einnig: Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku

Leit að stúlkunni bar engan árangur og fannst lík hennar tveimur dögum síðar.

Horner hélt því áður fram að hann hefði óvart ekið á Athenu þegar hann afhenti pakkann. Hann sagðist í kjölfarið hafa sett hana inn í bílinn í örvæntingu, af ótta við að missa vinnuna eða sæta öðrum afleiðingum.

Saksóknarar drógu þá frásögn í efa og lögðu meðal annars fram myndskeið og hljóðupptökur úr bílnum.

Sjá einnig: Kviðdómur fékk að heyra hrollvekjandi símtal morðingjans við móður sína

Verjendur Horners lögðu áherslu á andleg og líkamleg veikindi hans. Þeir sögðu hann hafa verið greindan með Asperger-heilkenni á unga aldri og að hann hefði orðið fyrir blýeitrun í æsku sem mögulega hefði valdið heilaskaða og skertri dómgreind.

Kviðdómendur töldu hins vegar ekkert í bakgrunni hans eða framkvæmd brotsins réttlæta lífstíðardóm án möguleika á reynslulausn í stað dauðadóms.

Saksóknarinn James Stainton sagði við réttarhöldin að Horner hefði sagt „lygi eftir lygi eftir lygi“ í málinu, meðal annars með því að halda því fram að hann hefði óvart ekið á stúlkuna og síðan orðið henni að bana í örvæntingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Vaknar þú oft með höfuðverk á morgnana? – Þrjú ráð til að koma í veg fyrir það

Vaknar þú oft með höfuðverk á morgnana? – Þrjú ráð til að koma í veg fyrir það
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Tryzub-laserkerfið getur hæft dróna í 5 km fjarlægð

Tryzub-laserkerfið getur hæft dróna í 5 km fjarlægð
Pressan
Í gær

Skoðanakannanir sýna afgerandi mun á kjósendum Demókrata- og Repúblikanaflokksins

Skoðanakannanir sýna afgerandi mun á kjósendum Demókrata- og Repúblikanaflokksins
Pressan
Í gær

Pútín situr fastur í Úkraínu og óróinn vex heima fyrir

Pútín situr fastur í Úkraínu og óróinn vex heima fyrir
Pressan
Í gær

Pútín eltir óvini sína uppi

Pútín eltir óvini sína uppi
Pressan
Í gær

Fundu 11.000 karata rúbín

Fundu 11.000 karata rúbín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tekinn af lífi þrátt fyrir fullyrðingar um þroskahömlun

Tekinn af lífi þrátt fyrir fullyrðingar um þroskahömlun
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir og dóttir meðal fimm sem létust í harmleiknum á Maldíveyjum

Móðir og dóttir meðal fimm sem létust í harmleiknum á Maldíveyjum