fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
Pressan

Amma banaði fjögurra ára barni með því að láta það drekka viskí í refsingarskyni

Pressan
Þriðjudaginn 5. maí 2026 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimmtíu og sjö ára kona í borginni Baton Rouge, í Lousiana-ríki í BNA, hefur verið sakfelld fyrir manndráp vegna dauða barnabarns síns, fjögurra ára stúlku.

Sakborningurinn heitir Roxanne Record. Dótturdóttir hennar, hin fjögurra ára gamla China Record, hafði stolist til að fá sér sopa úr viskíflösku á heimilinu. Amman, Roxanne, refsaði stúlkunni með því að neyða hana til að klára úr flöskunni, sem var hálffull. Harmleikurinn átti sér stað árið 2022. Barnið var meðvitundarlaust er viðbragðsaðilar komu á vettvang og lést skömmu síðar á sjúkrahúsi.

Roxanne var handtekin og játaði samstundis sök. Sagðist hún bera fulla ábyrgð á dauða barnsins og að refsingin hefði farið úr böndunum.

Hún var sakfelld fyrir manndráp þann 2. maí síðastliðinn.

Móðir barnsins, Kadjah Record, var stödd á heimilinu þegar dóttir hennar lést. Hún hefur líka verið ákærð fyrir morð vegna málsins og á að koma fyrir dómstól þann 29. júní næstkomandi.

Refsing yfir Roxanne Record verður ákveðin þann 10. ágúst næstkomandi. Á hún yfir höfði sér allt að 40 ára fangelsi.

Sjá nánar um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Vaknar þú oft með höfuðverk á morgnana? – Þrjú ráð til að koma í veg fyrir það

Vaknar þú oft með höfuðverk á morgnana? – Þrjú ráð til að koma í veg fyrir það
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Tryzub-laserkerfið getur hæft dróna í 5 km fjarlægð

Tryzub-laserkerfið getur hæft dróna í 5 km fjarlægð
Pressan
Í gær

Skoðanakannanir sýna afgerandi mun á kjósendum Demókrata- og Repúblikanaflokksins

Skoðanakannanir sýna afgerandi mun á kjósendum Demókrata- og Repúblikanaflokksins
Pressan
Í gær

Pútín situr fastur í Úkraínu og óróinn vex heima fyrir

Pútín situr fastur í Úkraínu og óróinn vex heima fyrir
Pressan
Í gær

Pútín eltir óvini sína uppi

Pútín eltir óvini sína uppi
Pressan
Í gær

Fundu 11.000 karata rúbín

Fundu 11.000 karata rúbín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tekinn af lífi þrátt fyrir fullyrðingar um þroskahömlun

Tekinn af lífi þrátt fyrir fullyrðingar um þroskahömlun
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir og dóttir meðal fimm sem létust í harmleiknum á Maldíveyjum

Móðir og dóttir meðal fimm sem létust í harmleiknum á Maldíveyjum