fbpx
Sunnudagur 17.maí 2026
Pressan

Gagnrýnir að rekni ráðherrann fái enn að búa í húsnæði landhelgisgæslunnar – „Noem þarf að pakka í tösku og fara“

Pressan
Þriðjudaginn 5. maí 2026 14:43

Kristi Noem með Donald Trump forseta

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristi Noem var vikið úr embætti heimavarnaráðherra Bandaríkjanna í mars. Engu að síður býr hún enn endurgjaldslaust í húsnæði landhelgisgæslunnar í Washington. Þetta hefur vakið athygli þar sem fyrri íbúa eignarinnar, Lindu Fagan, var hent út úr eigninni með miklum í janúar á síðasta ári.

Linda Fagan var fyrsta konan til að gegna stöðu yfirmanns hjá Landhelgisgæslunni en Donald Trump Bandaríkjaforseti vék henni úr starfi í janúar 2025, aðeins degi eftir embættistöku hans. Hún var síðar borin út úr húsnæðinu með aðeins þriggja klukkustunda fyrirvara þrátt fyrir að hafa fengið vilyrði fyrir 60 daga fresti til að finna sér nýtt húsnæði. Noem flutti inn í eignina í ágúst á síðasta ári.

Þingmaður demókrata, Robert Garcia, hefur krafið eftirmann Noem, Markwayne Mullin, um svör:

„Þessi sama ríkisstjórn henti yfirmanni úr landhelgisgæslunni út á götuna með aðeins þriggja klukkustunda fyrirvara til að rýma fyrir Noem, og jafnvel þótt Noem hafi verið rekin úr embætti vill hún ekki yfirgefa húsnæði ríkisins. Mullins ráðherra skuldar okkur svör og Noem þarf að pakka í tösku og fara.“

Garcia hefur farið fram á að eftirmaður Noem afhendi öll gögn og samskipti sem varða málið svo hægt sé að fá úr því skorið hvort hér hafi óvarlega verið farið með ríkiseign, opinbert fé eða hvort brögð séu í tafli.

Noem gefur þó lítið fyrir gagnrýnina og heldur því fram að hún sé ekki búsett í húsnæðinu sem Fagan var borin út úr. Hún sé í öðru húsnæði í eigu Landhelgisgæslunnar og borgi fyrir það fulla leigu úr eigin vasa.

Independent greinir frá

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Vaknar þú oft með höfuðverk á morgnana? – Þrjú ráð til að koma í veg fyrir það

Vaknar þú oft með höfuðverk á morgnana? – Þrjú ráð til að koma í veg fyrir það
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Tryzub-laserkerfið getur hæft dróna í 5 km fjarlægð

Tryzub-laserkerfið getur hæft dróna í 5 km fjarlægð
Pressan
Í gær

Skoðanakannanir sýna afgerandi mun á kjósendum Demókrata- og Repúblikanaflokksins

Skoðanakannanir sýna afgerandi mun á kjósendum Demókrata- og Repúblikanaflokksins
Pressan
Í gær

Pútín situr fastur í Úkraínu og óróinn vex heima fyrir

Pútín situr fastur í Úkraínu og óróinn vex heima fyrir
Pressan
Í gær

Pútín eltir óvini sína uppi

Pútín eltir óvini sína uppi
Pressan
Í gær

Fundu 11.000 karata rúbín

Fundu 11.000 karata rúbín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tekinn af lífi þrátt fyrir fullyrðingar um þroskahömlun

Tekinn af lífi þrátt fyrir fullyrðingar um þroskahömlun
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir og dóttir meðal fimm sem létust í harmleiknum á Maldíveyjum

Móðir og dóttir meðal fimm sem létust í harmleiknum á Maldíveyjum