fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
433Sport

Lofar því að halda verðinu niðri á HM í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 6. maí 2026 20:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eigandi Atlanta Falcons og Atlanta United FC, Arthur Blank, hefur heitið því að halda verði niðri fyrir stuðningsmenn sem sækja leiki á Mercedes-Benz Stadium á Heimsmeistaramótinu 2026.

Undirbúningur fyrir mótið hefur einkennst af gagnrýni á hátt miðaverð og aukinn kostnað við samgöngur í mörgum gestgjafaborgum. Blank segir þó að aðdáendur sem mæta á leiki í Atlanta geti átt von á sanngjörnu verði og góðri upplifun.

Atlanta mun hýsa átta leiki á mótinu, þar á meðal undanúrslitaleik, og Blank leggur áherslu á að upplifun stuðningsmanna verði í fyrirrúmi.

„Stuðningsmenn gefa okkur tíma sinn, orku og ástríðu og við verðum að sýna því virðingu,“ sagði hann í viðtali við WSBTV.

Hann segir að félagið geti ekki stjórnað því sem gerist inni á vellinum en geti hins vegar tryggt góða þjónustu og sanngjarnt verð.

Á sama tíma hefur verð á miðum á mótið vakið athygli, en ódýrustu miðar á úrslitaleikinn hafa farið yfir 8.000 dollara á endursölumarkaði. Það hefur valdið gremju meðal stuðningsmanna sem óttast að mótið verði of dýrt fyrir almenning.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Árni Tómas er látinn
433Sport
Í gær

Hugarfarið hafi ekki virkað nógu gott – „Vanmat er eitur“

Hugarfarið hafi ekki virkað nógu gott – „Vanmat er eitur“
433Sport
Í gær

Hefði áhyggjur af þessu sem KR-ingur

Hefði áhyggjur af þessu sem KR-ingur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola með áhugaverð svör þegar hann var spurður út í tímabilið

Guardiola með áhugaverð svör þegar hann var spurður út í tímabilið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Goðsögnin leggur skóna á hilluna

Goðsögnin leggur skóna á hilluna