fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
433Sport

Victoria svarar fyrir ásakanir sem hún og Beckham hafa mátt þola – „Það var aldrei ætlunin að búa til vörumerki“

433
Miðvikudaginn 6. maí 2026 20:30

David og Victoria Beckham.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Victoria Beckham hefur svarað opinberlega gagnrýni sonar síns Brooklyn Beckham í viðtali þar sem hann sakaði fjölskyldu sína um yfirborðskennda hegðun og að setja „Brand Beckham“ í forgang fram yfir fjölskyldutengsl.

Í viðtali við Aspire-hlaðvarp Emma Grede sagði Victoria að hugmyndin um „Brand Beckham“ hefði aldrei verið meðvituð stefna. Hún og eiginmaður hennar David Beckham hefðu einfaldlega byggt upp feril sinn hvor í sínu lagi.

„Þegar við kynntumst var það aldrei ætlunin að búa til vörumerki. Þetta þróaðist bara með tímanum,“ sagði Victoria og benti á að bæði hún og David hefðu unnið með stórum vörumerkjum löngu áður en hugtakið „Brand Beckham“ varð til.

Brooklyn Beckham, Nicola Peltz, Victoria Beckham og David Beckham.

Brooklyn lét í janúar hafa eftir sér að hann vildi ekki sættast við foreldra sína og sakaði fjölskylduna um að setja ímynd og auglýsingasamninga í forgang. Hann hélt því einnig fram að hann hefði upplifað mikla pressu og kvíða í uppvextinum.

Victoria sagðist þó hafa reynt að vernda börn sín eftir fremsta megni þrátt fyrir að þau hafi alist upp í sviðsljósinu.

„Við höfum alltaf reynt að halda þeim eins mikið frá athyglinni og hægt er og verið mjög náin fjölskylda,“ sagði hún og bætti við að hún hefði aldrei verið ýkt stjórnandi foreldri.

Samband fjölskyldunnar virðist þó vera stirt, en fregnir herma að Brooklyn og eiginkona hans, Nicola Peltz, hafi ekki átt samskipti við David og Victoria síðan í maí í fyrra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Árni Tómas er látinn
433Sport
Í gær

Hugarfarið hafi ekki virkað nógu gott – „Vanmat er eitur“

Hugarfarið hafi ekki virkað nógu gott – „Vanmat er eitur“
433Sport
Í gær

Hefði áhyggjur af þessu sem KR-ingur

Hefði áhyggjur af þessu sem KR-ingur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola með áhugaverð svör þegar hann var spurður út í tímabilið

Guardiola með áhugaverð svör þegar hann var spurður út í tímabilið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Goðsögnin leggur skóna á hilluna

Goðsögnin leggur skóna á hilluna