fbpx
Sunnudagur 17.maí 2026
Pressan

Játar að hafa myrt svissneska fegurðardrottningu en segist hafa elskað hana – Kyrkt og sett í blandara

Pressan
Mánudaginn 4. maí 2026 22:00

Kristina Joksimovic. Mynd:Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Réttarhöld standa nú yfir í Sviss vegna morðs sem framið var í febrúar árið 2024. Fegurðardrottning að nafni Kristina Joksimovic, 38 ára gömul, fannst þá látin í þvottahúsinu á heimili sínu í Binningen, sem er um 3 km suðvestan við Basel. Krufning leiddi í ljós að hún hafði verið kyrkt og síðan hafði lík hennar verið sundurhlutað með sög, hníf og garðklippum í þvottahúsinu. Nokkrir líkamshlutar voru settir í blandara og leystir upp í efnablöndu.

Hún lét eftir sig tvö börn. Eiginmaður Kristinu, Marc Rieben, 43 ára gamall, játaði fyrir lögreglu á sínum tíma að hafa valdið dauða eiginkonu sinnar, en sagðist hafa drepið hana í sjálfsvörn, en hún hafi ráðist á hann með hnífi. Sá framburður var ekki álitinn trúverðugur.

Í dag, mánudag, bar Rieben vitni í málinu og var tárvotur í dómsal. Hann sagðist hafa elskað Kristinu af öllu hjarta. Hann viðurkenndi að hún hefði dáið af hans hendi en sagði að það hefði verið slys. Rieben sagði:

„Ég hef valdið fjölskyldu minni ómælanlegum þjáningum. Hvers vegna? Hvers vegna brást ég? Hvers vegna gat ég ekki komið í veg fyrir það? Hvers vegna kom ég ekki í veg fyrir að hún dæi af minni hendi?“

Rieben sagðist taka fulla ábyrgð á dauða Kristinu. „Það sem ég gerði var algjörlega ófyrirgefanlegt og ég tek fulla ábyrgð á því. Ég iðrast þess einlæglega og ég biðst afsökunar.“

Nánar má lesa um málið hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Vaknar þú oft með höfuðverk á morgnana? – Þrjú ráð til að koma í veg fyrir það

Vaknar þú oft með höfuðverk á morgnana? – Þrjú ráð til að koma í veg fyrir það
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Tryzub-laserkerfið getur hæft dróna í 5 km fjarlægð

Tryzub-laserkerfið getur hæft dróna í 5 km fjarlægð
Pressan
Í gær

Skoðanakannanir sýna afgerandi mun á kjósendum Demókrata- og Repúblikanaflokksins

Skoðanakannanir sýna afgerandi mun á kjósendum Demókrata- og Repúblikanaflokksins
Pressan
Í gær

Pútín situr fastur í Úkraínu og óróinn vex heima fyrir

Pútín situr fastur í Úkraínu og óróinn vex heima fyrir
Pressan
Í gær

Pútín eltir óvini sína uppi

Pútín eltir óvini sína uppi
Pressan
Í gær

Fundu 11.000 karata rúbín

Fundu 11.000 karata rúbín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tekinn af lífi þrátt fyrir fullyrðingar um þroskahömlun

Tekinn af lífi þrátt fyrir fullyrðingar um þroskahömlun
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir og dóttir meðal fimm sem létust í harmleiknum á Maldíveyjum

Móðir og dóttir meðal fimm sem létust í harmleiknum á Maldíveyjum