fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Pressan

Þýskur öfgahægriflokkur býður upp á ókeypis rússneskukennslu og brottflutning innflytjenda

Pressan
Laugardaginn 2. maí 2026 18:30

Frá mótmælunum í Potsdam á vegum AfD. Skjáskot/YouTube/SkyNews

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þýski öfgahægriflokkurinn Alternative fur Deutschland (AfD) lofar kjósendum að innflytjendur verði fluttir úr landi og að boðið verði upp á ókeypis rússneskukennslu í Saxony-Anhalt ef flokkurinn sigrar í kosningunum í september.

Metro skýrir frá þessu og segir að Ulrich Siegmund, oddviti flokksins, hafi sagt að flokkurinn standi fast á að innflytjendur verði fluttir úr landi.

CNN hefur séð stefnuskrá flokksins og segir að í henni sé hvatt til „180 gráðu beygju“ hvað varðar móttöku innflytjenda og að innflytjendur verði fluttir úr landi, svokallað „remigration“ sem hefur verið tengt við hugmyndafræði nasista.

Remigration beinist að brottflutningi innflytjenda og flóttamanna, aðallega þeirra sem eru ekki hvítir á hörund, aftur til upprunalands þeirra.

Flokkurinn er einnig á móti því sem hann kallar „and-rússneska stefnu“ annarra stjórnmálaflokka. Í stefnuskránni segir að þessi stefna þjóni ekki hagsmunum Þýskalands og geri lítið annað en að kljúfa Evrópu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Fyrir 2 dögum

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“