fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Pressan

Ef pinkóðinn þinn er á listanum, þá ættirðu að breyta honum strax

Pressan
Sunnudaginn 3. maí 2026 13:30

Það er gott að endurræsa farsímana. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pinkóði getur virst frekar léttvægur í hinu stóra samhengi hversdagsins. En það eru samt sem áður þessir fjórir tölustafir sem veita okkur aðgang að bankareikningum okkar, símanum og ýmsum persónulegum upplýsingum og gögnum. Það getur því skipt miklu máli að vera með góðan pinkóða sem afbrotamenn geta ekki svo auðveldlega komist á snoðir um.

Mest notuðu kóðarnir eru í mestri hættu

Ný greining á umfangsmiklum gagnalekum sýnir að margir velja mjög einfalda pinkóða. Samsetningar á borð við 1234, 0000 og 1111 eru meðal þeirra allra algengustu.

Það er auðvelt að muna þessa kóða en þeir eru líka meðal þeirra fyrstu sem utanaðkomandi reyna að nota.

Margir nota sömu pinkóðana sem þýðir einfaldlega að frekar lítill hópur pinkóða er mest notaður af öllum pinkóðum. Kaipkada skýrir frá þessu.

Vani veikir öryggið

Val á pinkóða er sjaldnast tilviljun eina. Margir velja pinkóða sem er auðvelt að þekkja, til dæmis með endurtekningum eða einföldum talnaröðum. Aðrir nota fæðingarárið eða dagsetningar sem hafa persónulega þýðingu, til dæmis brúðkaupsdaginn. Þetta gerir fólki auðveldara fyrir við að muna pinkóðana en um leið verður auðveldara fyrir óviðkomandi að átta sig á hverjir þeir eru.

Það er auðveldara að finna út hver kóðinn er ef einföld rök eru á bak við samsetningu hans.

Fjögurra talna pinkóði býður fræðilega upp á 10.000 hugsanlegar samsetningar. En í raunveruleikanum er þær mun færri því svo margir velja sömu samsetninguna.

Þeir, sem hafa illt í hyggju, byrja oft á að reyna algengustu pinkóðana og því er fólk í mun meiri hættu ef það notar þá.

Svona velur þú öflugri pinkóða

Það er yfirleitt ekki þörf á að skipta um kort eða tæki, í flestum tilfellum nægir að breyta pinkóðanum þannig að samsetning hans sé ekki eins fyrirsjáanleg.

Þetta er einföld aðgerð sem eykur öryggið mikið.

Öflugur pinkóði fylgir ekki greinilegu mynstri. Hann ætti heldur ekki að byggjast á persónulegum upplýsingum sem aðrir geta giskað á, til dæmis afmælisdaginn þinn.

Mælt er með að velja samsetningu, sem virðist algjör tilviljun séð utan frá, en er um leið hægt að muna. Það á heldur ekki að nota sama pinkóðann fyrir margar þjónustur eða greiðslukort.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Fyrir 2 dögum

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“