fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
433Sport

Grípa til rótækra aðgerða og leikmenn fá ekki að fara heim til sín

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 6. maí 2026 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marseille hefur gripið til róttækra aðgerða í tilraun til að bjarga tímabilinu eftir slæmt gengi undanfarið.

Samkvæmt RMC Sport hafa leikmenn liðsins verið látnir gista á æfingasvæði félagsins, Robert-Louis-Dreyfus æfingamiðstöðinni, að kröfu þjálfarans Habib Beye og forráðamanna félagsins. Ákvörðunin kemur í kjölfar 3-0 taps gegn Nantes um helgina.

Frá því að Roberto De Zerbi yfirgaf félagið hefur Marseille átt í miklum erfiðleikum og aðeins unnið einn leik síðan 13. mars. Liðið er nú í sjöunda sæti frönsku deildarinnar og hefur nánast misst af sæti í Meistaradeildinni.

Forráðamenn félagsins eru sagðir ósáttir við hugarfar og skuldbindingu leikmannahópsins, þar á meðal Mason Greenwood, og telja þessa ráðstöfun nauðsynlega til að hrista upp í liðinu.

Markmiðið er að bæta einbeitingu og samstöðu innan hópsins og tryggja að félagið missi ekki einnig af Evrópukeppni á næsta tímabili.

Hins vegar hefur aðgerðin vakið gagnrýni, en vinnuréttarlögfræðingur í París telur að slík krafa gæti talist á mörkum þess að vera áreitni gagnvart leikmönnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Árni Tómas er látinn
433Sport
Í gær

Hugarfarið hafi ekki virkað nógu gott – „Vanmat er eitur“

Hugarfarið hafi ekki virkað nógu gott – „Vanmat er eitur“
433Sport
Í gær

Hefði áhyggjur af þessu sem KR-ingur

Hefði áhyggjur af þessu sem KR-ingur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola með áhugaverð svör þegar hann var spurður út í tímabilið

Guardiola með áhugaverð svör þegar hann var spurður út í tímabilið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Goðsögnin leggur skóna á hilluna

Goðsögnin leggur skóna á hilluna