fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Pressan

Þetta kom lögreglu á spor FedEx-morðingjans – „Þú tókst ekki bara líf, þú eyðilagðir fjölskyldu“

Pressan
Miðvikudaginn 6. maí 2026 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kviðdómur í Texas komst að þeirri niðurstöðu í gærkvöldi að Tanner Horner skyldi hljóta dauðadóm fyrir morðið á hinni sjö ára gömlu Athena Strand árið 2022. Horner, sem sinnti akstri fyrir FedEx þegar hann myrti stúlkuna, játaði þegar réttarhöldin hófust í síðasta mánuði.

Málið hefur vakið mikinn óhug og þurfti kviðdómur að hlusta á hljóðupptöku úr FedEx-bifreið Horners þar sem heyra mátti síðustu mínúturnar í lífi stúlkunnar.

Sjá einnig: Bílstjórinn dæmdur til dauða

Töldu fyrst að Horner gæti verið vitni

En hvernig hafði lögreglan uppi á morðingjanum?

Þann 20. nóvember árið 2022 var stjúpmóðir stúlkunnar, Ashley Strand, að elda kvöldmat. Þegar hún ætlaði að sækja stúlkuna var sú stutta ekki lengur í herbergi sínu. Ashley leitaði stúlkunnar í um klukkustund áður en hún hafði samband við lögregluna.

Horner var handtekinn nokkrum dögum síðar. Hann játaði fljótlega morðið og vísaði lögreglu á staðinn þar sem hann losaði sig við líkið.

Þegar refsing Horners var ákvörðuð greindi rannsóknarlögreglumaður FBI, Patrick McGuire, frá því hvað kom lögreglu á sporið. Þar var kassi af barbie-dúkkum. Kassinn hafði borist með sendingu skömmu áður en stúlkan hvarf. Strax á öðrum degi rannsóknarinnar ákvað lögregla að rekja þessa sendingu.

Lögreglumaðurinn Job Espinoza, sem fór fyrir rannsókninni, sagði:

„Mitt helsta markmið var að komast að því: hver kom með sendinguna? Hvað sá hann? Fyrst og fremst taldi ég í fyrstu að þarna væri um mögulegt vitni að ræða.“

Græni bíllinn sem var ekki til

Sendingin var rakin til Horners sem samþykkti að gefa vitnaskýrslu og benti lögreglu á að hann hefði séð gamlan grænan sendibíl við heimili stúlkunnar.

Lögreglan hóf þá leit að þessum græna sendibíl en þá fékk Espinoza hugmynd: Mögulega væri öryggismyndavél í FedEx-bifreiðinni sem hefði náð mynd af númeraplötu eða öðru. Hann leitaði til fyrirtækisins Velociter sem sér um myndavélarnar í FedEx-bifreiðunum. Eftir að upptökurnar bárust vissi Espinoza að það hefði enginn grænn bíll verið á svæðinu. Horner laug því hann hafði rænt stúlkunni.

„Ég sá að Athena var þarna enn á lífi og að Horner hafði tekið hana upp í FedEx-bifreiðina, og miðað við það sem ég sá, og þetta var áríðandi, var mögulegt að Athena væri enn á lífi og að við þyrftum að koma henni heim.“

Sjá einnig: Mynd úr sendibílnum kollvarpaði frásögn morðingjans

Lögregla vonaði þarna enn að stúlkan væri á lífi en eftir að Horner var yfirheyrður aftur játaði hann að hafa óvart bakkað á stúlkuna. Hann hafi orðið hræddur um að stúlkan myndi klaga hann og því numið hana á brott. Síðan hafi hann kyrkt hana til að þagga niður í henni.

Horner var þó ekki að segja satt enda sést á upptökum að hann lokkaði stúlkuna inn í bílinn og ók svo á brott. Stúlkan spyr hvort að Horner sé mannræningi og þá skipaði hann henni að setjast og halda kjafti því annars myndi hann meiða hana. Síðan huldi hann myndavélina sem hélt þó áfram að taka upp hljóð. Kviðdómur heyrði hvernig Horner skipaði stúlkunni að fara úr bolnum og hvernig hún neitaði og sagðist vilja mömmu sína.

Upptakan er rúm klukkustund og má þar heyra stúlkuna öskra, gráta og loks þagna.

Sjá einnig: Kviðdómur fékk að heyra hrollvekjandi símtal morðingjans við móður sína

Espinoza segir að eftir að Horner hafi játað að hafa banað stúlkunni hafi hann samþykkt að leiða lögreglu að stúlkunni, eða nöktu líki hennar sem Horner hafði kastað í Trinity-ána.

Frændi Athenu, Elijah Strand, sagði fyrir dómi í gær:

„Þú tókst ekki bara líf, þú eyðilagðir fjölskyldu. Þú ert ekkert, þú ert neðanmálsgrein í sögu Athenu.“

People greinir frá. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk „brostið hjarta“-heilkenni eftir dauða móður sinnar – tekur nú þátt í byltingarkenndri rannsókn

Fékk „brostið hjarta“-heilkenni eftir dauða móður sinnar – tekur nú þátt í byltingarkenndri rannsókn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hjón létu börnin sín nærast eingöngu á fljótandi fæði – 12 ára stúlka leit út fyrir að vera 6-8 ára

Hjón létu börnin sín nærast eingöngu á fljótandi fæði – 12 ára stúlka leit út fyrir að vera 6-8 ára
Pressan
Fyrir 3 dögum

Systurnar voru taldar hafa látist í hörmulegu slysi – Nú hefur móðir þeirra verið handtekin

Systurnar voru taldar hafa látist í hörmulegu slysi – Nú hefur móðir þeirra verið handtekin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Karlar sem hlusta á konuna sína ná meiri árangri

Karlar sem hlusta á konuna sína ná meiri árangri
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hitinn í svefnherberginu getur haft áhrif á heilsufar þitt

Hitinn í svefnherberginu getur haft áhrif á heilsufar þitt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Efninu hefur verið líkt við olíuna í upphafi tuttugustu aldarinnar – Nú er það grafið úr jörðu í Finnlandi

Efninu hefur verið líkt við olíuna í upphafi tuttugustu aldarinnar – Nú er það grafið úr jörðu í Finnlandi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fjölskyldan beið til einskis á flugvellinum – Fjölskyldufaðirinn handtekinn fyrir ósiðlegt athæfi

Fjölskyldan beið til einskis á flugvellinum – Fjölskyldufaðirinn handtekinn fyrir ósiðlegt athæfi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bætir í áhyggjur Harry prins – Óttast að versta martröð hans verði að veruleika

Bætir í áhyggjur Harry prins – Óttast að versta martröð hans verði að veruleika