fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Pressan

„Ég get ekki leyft þessu skipi að koma til Kanaríeyja“

Pressan
Miðvikudaginn 6. maí 2026 09:12

Ekki eru allir sáttir við að skipið fái að koma til Kanaríeyja. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er alls óvíst hvort skemmtiferðaskipið MV Hondius fái að leggjast að bryggju á Kanaríeyjum. Þrír hafa látist af völdum hantaveirusmits um borð og nokkrir aðrir eru veikir.

Til stóð að skipið færi til Kanaríeyja og var greint frá því í gær að skipið hefði fengið grænt ljós á að leggja af stað frá Grænhöfðaeyjum. En yfirvöld á Kanaríeyjum eru þessu mótfallin.

Fernando Clavijo, forseti héraðsstjórnar Kanaríeyja, segir í samtali við COPE að hann hafi óskað eftir fundi með Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, vegna málsins.

Clavijo segist óttast um velferð og heilsu íbúa eyjanna og að þær upplýsingar sem yfirvöld hefðu fengið væru ófullnægjandi. „Ég get ekki leyft þessu skipi að koma til Kanaríeyja,“ ítrekaði hann.

Sem stendur eru tveir alvarlega veikir á skipinu og verður annar þeirra fluttur frá Grænhöfðaeyjum til Hollands með sjúkraflugi. Hinn, breskur læknir, verður fluttur með sjúkraflugi beint til Kanaríeyja samkvæmt spænskum fjölmiðlum.

Heilbrigðisráðuneyti Spánar sagði að skipið ætti að koma til eyjanna eftir þrjá til fjóra daga og bætti við að við komuna yrðu áhöfn og farþegar rannsakaðir, hlúð að þeim og þeir fluttir þaðan til sinna heimalanda.

Ráðuneytið sagði Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina telja Kanaríeyjar vera næsta stað með fullnægjandi læknisaðstöðu til að taka á málinu.

Skemmtiferðafyrirtækið Oceanwide Expeditions sagði að áætlunin væri að sigla norður til Kanaríeyja, annaðhvort Gran Canaria eða Tenerife, sem tæki þrjá daga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Fyrir 2 dögum

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“