fbpx
Mánudagur 04.maí 2026
Pressan

Ásakanir um kynlífsþrælkun á Wall Street sagðar uppspuni frá rótum

Pressan
Mánudaginn 4. maí 2026 06:00

Frá New York. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fullyrt er að ásakanir fyrrverandi starfsmanns bandaríska fjárfestingabankans JP Morgan um að kvenkyns stjórnandi hjá bankanum hafi í raun gert hann að kynlífsþræl sínum séu uppspuni frá rótum. Hefur starfsmaðurinn, sem er karlkyns, stefnt konunni.

New York Post fjallar um málið. Þar segir að starfsmaðurinn fyrrverandi sé á fertugsaldri og heiti Chirayu Rana en konan er tveimur ári eldri og heitir Lorna Hajdini. Þau störfuðu bæði í höfuðstöðvum JP Morgan í fjármálahverfinu Wall Street í New York.

Rana hefur stefnt Hajdini. Hann sakar hana um kynferðislega áreitni og að hafa gert hann að kynlífsþræl sínum með því að byrla honum nauðgunarlyfinu Rohypnol og stinningarlyfinu Viagara. Sagði hann hana hafa hótað því að skera niður bónusgreiðslur til hans ef hann myndi ekki lúta að vilja hennar.

New York Post hefur hins vegar heimildir fyrir því að innri rannsókn á vegum bankans hafi leitt í ljós að þessar ásakanir eigi sér enga stoð í veruleikanum.

Sakaði Rana einnig Hajdini um að hafa komið óboðin á heimili hans og neytt hann til að stunda með sér kynlíf.

Hajdini harðneitar ásökunum Rana en hann segir hana hafa byrjað að áreita sig skömmu eftir að hann hóf störf árið 2024 í þeirri deild bankans þar sem hún er meðal stjórnenda.

Uppspuni

Rana lagði fram kvörtun innan bankans á síðasta ári og sagðist hafa verið beittur áreitni og ofbeldi á grundvelli kyns og kynþáttar. Hann lét í kjölfarið af störfum eftir að hafa að sögn reynt að fá háa starfslokagreiðslu frá bankanum. Auk þess að stefna Hajdini hefur Rana stefnt bankanum.

Talsmaður JP Morgan segir að eftir ítarlega rannsókn á síma- og tölvugögnum og samtöl við fjölda starfsmanna bankans sé það niðurstaðan að ásakanirnar séu uppspuni frá rótum. Rana neitaði að taka þátt í rannsókninni.

Heimildarmenn benda einnig á að Hajdini hafi ekki verið yfirmaður Rana og því ekki haft neitt boðvald yfir honum og þaðan af síður haft eitthvað um bónusgreiðslur til hans að segja eins og hann fullyrði.

Rana starfar nú hjá öðru fjármálafyrirtæki en Hajdini starfar enn hjá JP Morgan.

Ekki ligur fyrir hvenær dómsmál hans á hendur henni og bankanum kemur fyrir dóm.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“
Pressan
Í gær

„Við hófum samfarirnar“ – „Síðan hringdi hann myndsímtal til vinar síns“

„Við hófum samfarirnar“ – „Síðan hringdi hann myndsímtal til vinar síns“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á að taka D-vítamín á morgnana eða kvöldin?

Á að taka D-vítamín á morgnana eða kvöldin?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kynntist stúlkunni þegar hún var 11 ára gömul – Eftir morðið keypti hann keðjusagir, uppblásna sundlaug og líkpoka

Kynntist stúlkunni þegar hún var 11 ára gömul – Eftir morðið keypti hann keðjusagir, uppblásna sundlaug og líkpoka
Pressan
Fyrir 4 dögum

92 ára maður sakaður um að myrða 87 ára eiginkonu sína

92 ára maður sakaður um að myrða 87 ára eiginkonu sína