fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Pressan

Svíar lækka sakhæfisaldurinn

Pressan
Mánudaginn 4. maí 2026 06:30

Sænskir lögreglumenn við störf. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir gagnrýni hefur sænska ríkisstjórnin ákveðið að leggja fram lagafrumvarp um lækkun sakhæfisaldursins. Verður hann færður niður í 13 ár fyrir börn sem fremja alvarleg afbrot.

TT fréttastofan skýrir frá þessu og segir að samkvæmt frumvarpinu verði sakhæfisaldurinn lækkaður fyrir alvarleg afbrot, sem minnst fjögurra ára fangelsi liggur við. Það eru til dæmis morð, morðtilraun og grófar nauðganir.

TT segir að margir hafi gagnrýnt frumvarpið, þar á meðal sérfræðingar.

Lagaráðið hafnaði frumvarpinu einnig en ráðið fer yfir þau lagafrumvörp sem ríkisstjórnin hyggst leggja fyrir þingið. En þrátt fyrir þessa höfnun ákvað ríkisstjórnin að senda frumvarpið til þingsins.

Gunnar Strömmer, dómsmálaráðherra, sagði á fréttamannafundi að núverandi kerfi hafi hvorki verndað landsmenn gegn lífshættulegum ofbeldisverkum, né brotið þau slæmu mynstur sem eru oft í kringum þau börn sem fremja alvarleg afbrot. Hann benti á að á síðasta ári hafi 52 börn, yngri en 15 ára, komið við sögu í réttarhöldum er varða morð eða morðáætlanir og sagði hann þennan fjölda vera skelfilegan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Fyrir 2 dögum

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“