fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Pressan

Völd Pútíns fara þverrandi – „Vinahópurinn hefur minnkað mikið“

Pressan
Laugardaginn 2. maí 2026 19:00

Xi Jinping og Vladimír Pútín virðast enn vera vinir. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Innrás Rússa í Úkraínu hefur orðið til þess að þjappa Evrópusambandsríkjunum saman, að mestu. Ákveðnar undantekningar hafa þó verið á því og má þar helst nefna Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, sem hefur verið mjög upp á kant við aðra leiðtoga ESB varðandi málefni Rússlands.

En hann tapaði hressilega í nýafstöðnum þingkosningum eftir 16 ár í forsætisráðherrastólnum. Við þennan ósigur missti Pútín vin sinn í ESB og manninn sem hafði stöðvað lánveitingu upp á 90 milljarða evra til Úkraínu.

En það er ekki bara Ungverjaland sem færist fjær Rússlandi og Pútín. Áhrif hans í öðrum löndum, sem hann vill gjarnan stýra, fara einnig þverrandi.

Þetta sagði Arne Bård Dalhaug, fyrrum yfirliðsforingi og stjórnandi varnarmálaskóla NATÓ, í samtali við Dagbladet.

„Rússland hefur misst mikil áhrif í Sýrlandi, Venesúela, Aserbaídsjan, Moldóvu og nú síðast í Ungverjalandi. Það er engin vafi á að vinahópurinn hefur minnkað mikið,“ sagði hann.

Hann benti á að eftir að Bashar al-Assad, einræðisherra í Sýrlandi, hrökklaðist frá völdum 2024 hafi hinum nýja leiðtoga landsins, Ahmed al-Sharaa, verið tekið opnum örmum af Bandaríkjunum og öðrum vestrænum ríkjum. Fall Assad hafi verið þungt högg fyrir áhrif Rússa í Miðausturlöndum.

Dalhaug sagði einnig að svo virðist sem Pútín hafi einnig misst tengslin við Venesúela í kjölfar þess að Bandaríkjamenn handsömuðu Nicolás Maduro, forseta, og fluttu til Bandaríkjanna.

Hvað varðar samband Rússlands og Aserbaídsjan sagði hann að það einkennist nú af miklu vantrausti og sögulegu brotthvarfi undan áhrifum Moskvuvaldsins.

Einnig hafi Moldóva tekið afstöðu gegn Pútín og Rússlandi og halli sér nú að Vesturlöndum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Fyrir 2 dögum

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“