fbpx
Mánudagur 04.maí 2026
Pressan

Er það núna sem Pútín er hættulegastur?

Pressan
Mánudaginn 4. maí 2026 07:30

Er Pútín hættulegri en áður? Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Slæmu fréttirnar fyrir Vladímír Pútín koma hver á fætur annarri þessa dagana. Það getur gert að verkum að nú verði hann allra hættulegastur hvað varðar NATÓ og restina af Evrópu.

 Þetta er vinsæl kenning hjá mörgum þekktum stríðsbloggurum sem hafa ekki haldið aftur af sér við að deila henni að undanförnu.

B.T. spurði tvo sérfræðinga að þessu og vildi hvorugur þeirra hafna þessari kenningu.

„Ég get vel sett mig inn í þennan hugsunarhátt um að Pútín telji að það gangi svo illa í Úkraínu að hann neyðist til að finna eitthvað annað til að beina athyglinni frá því,“ sagði Claus Mathiesen, lektor við danska varnarmálaskólann.

Það er ljóst að það gengur ekki eins vel í Úkraínu og Pútín vildi. Þegar hann gaf hernum fyrirskipun um að ráðast inn í Úkraínu í febrúar 2022 voru ráðamenn í Kreml þess fullvissir að það tæki aðeins nokkra daga eða vikur að sigra Úkraínumenn.

Nú er stríðið komið inn í sitt fimmta ár og febrúar og mars voru tveir verstu mánuðir rússneska hersins í Úkraínu síðan 2023.

Úkraínumenn náðu að endurheimta meira land en Rússar náðu að leggja undir sig. Vorsókn Rússa virðist vera algjörlega misheppnuð þrátt fyrir digurbarkalegar yfirlýsingar yfirmanna hersins.

Úkraínumenn hafa gert það ótrúlega gott í hönnun dróna og vélmenna sem bæta upp það sem þá vantar af mannskap í herinn.

Þetta þýðir að Úkraínumenn hafa verið ótrúlega góðir við að fella rússneska hermenn. Það hafa þeir gert í svo miklum mæli síðustu mánuði að Rússar geta ekki lengur bætt mannfallið upp með nýskráningum í herinn.

Það eykur þrýstinginn á Pútín að vaxandi óánægju gætir meðal almennings vegna hás matvælaverðs, bensínskorts, lokunar á Internetinu og fjölda annarra hluta.

Út frá þessu telja margir að hann verði sífellt hættulegri hvað varðar hugsanlega árás á NATÓ og Evrópu.

„Það getur vel verið að Pútín sé næstum kominn á þann stað að honum gæti dottið í hug að láta til skara skríða til dæmis í Eystrasaltsríkjunum eða Póllandi. Þeir eru undir pressu í Úkraínu og þá getur sú hugsun komið upp hverju það geti skilað ef hert verður á fjölþáttastríðinu,“ sagði Flemming Splidsboel, sérfræðingur í málefnum Rússlands hjá dönsku hugveitunni DIIS.

„Það er hérna sem þetta getur orðið alvarlegt. Fyrir Rússland og Pútín getur orðið freistandi að ganga lengra en bara með fjölþáttastríði og þá gæti árás á til dæmis Eystrasaltsríkin komið til greina,“ bætti Splidsboel við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“
Pressan
Í gær

„Við hófum samfarirnar“ – „Síðan hringdi hann myndsímtal til vinar síns“

„Við hófum samfarirnar“ – „Síðan hringdi hann myndsímtal til vinar síns“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á að taka D-vítamín á morgnana eða kvöldin?

Á að taka D-vítamín á morgnana eða kvöldin?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kynntist stúlkunni þegar hún var 11 ára gömul – Eftir morðið keypti hann keðjusagir, uppblásna sundlaug og líkpoka

Kynntist stúlkunni þegar hún var 11 ára gömul – Eftir morðið keypti hann keðjusagir, uppblásna sundlaug og líkpoka
Pressan
Fyrir 4 dögum

92 ára maður sakaður um að myrða 87 ára eiginkonu sína

92 ára maður sakaður um að myrða 87 ára eiginkonu sína