fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Hún fór heim til hans – Þegar hún fór inn á bað uppgötvaði hún stóra „leyndarmálið“ hans

Pressan
Laugardaginn 2. maí 2026 20:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Haley hélt að hún væri með allt á hreinu varðandi manninn sem hún var að fara á stefnumót með eftir að hafa komist í samband við hann á Tinder. Hann var fráskilinn, bjó einn átti ekki unnustu.

Þau hittust eftir að hafa skipst á skilaboðum í tvær vikur í gegnum Tinder. Hún hafði spurt hann allra helstu spurninganna: „Ertu giftur?“, „Áttu börn?“ og „Býrðu einn?“

Svörin voru alltaf á sömu leið, hann var fráskilinn, einhleypur og barnlaus.

Þegar hann bauð henni loks heim, lét hún slag standa og fór heim til hans enda virtust þau ná vel saman.

Allt gekk vel þar til hún þurfti að fara á klósettið og spurði hann hvort það væri í lagi. Hún tók eftir því að hann virtist aðeins hikandi áður en hann sagði já.

Þegar hún kom inn á baðherbergið áttaði hún sig á stöðu mála og vissi um leið að hún væri á heimleið.

Ástæðan var að baðherbergið var augljóslega ekki baðherbergi einhleyps karlmanns. Það var andlitsfarði þar inni, ýmsar hárvörur og það sem var eiginlega besta sönnunin, tveir tannbursta í tannburstaglasinu. Annar var bleikur.

Haley birti síðan myndband á TikTok þar sem hún skýrði frá þessu og sagði meðal annars: „Hann er sköllóttur svo hann hefur engin not fyrir allar þessar hárvörur.“

Þegar hún kom fram aftur var hún ekki í skapi til að halda stefnumótinu áfram og kom sér beint að efninu og spurði hann út í það sem var inni á baði.

Hann reyndi ekki að ljúga og sagði: „Já, fyrirgefðu. Ég hefði átt að segja þér það. Ég er kvæntur.“

Haley var að vonum öskureið og yfirgaf húsið en var harðákveðin í að hér myndi málinu ekki ljúka.

Nokkrum dögum síðar ók hún aftur heim til mannsins til að hitta konuna hans og segja henni frá þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt
Pressan
Í gær

Fjölskyldan hvarf 1958 – Fannst nýlega

Fjölskyldan hvarf 1958 – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 4 dögum

Missti son sinn og eiginmann þegar Titan kaftækið fórst – Lýsir því hvernig líkamsleifum þeirra var skilað heim

Missti son sinn og eiginmann þegar Titan kaftækið fórst – Lýsir því hvernig líkamsleifum þeirra var skilað heim
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fjórir handteknir í 43 ára gömlu morðmáli – hlaðvarp gegndi lykilhlutverki

Fjórir handteknir í 43 ára gömlu morðmáli – hlaðvarp gegndi lykilhlutverki
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna ættirðu ávallt að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina

Þess vegna ættirðu ávallt að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina