fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
Fréttir

Þröstur er með nýrnabilun á lokastigi – Óskar eftir aðstoð til að halda reisn og sjálfstæði „síðustu ár ævi minnar“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. maí 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ljósmyndarinn Þröstur Guðlaugsson er 71 árs gamall með nýrnabilun á lokastigi. Sökum veikindanna þarf hann reglulega að mæta á Landspítalann í blóðskilun, eða fimm sinnum í viku. Sem stendur notast hann við bifreið sem hann er með að láni, en það er honum dýrt og auk þess er erfitt að finna bílstæði við Landspítalann. Að lokinni meðferð á hann stundum erfitt með að keyra heim því fjögurra tíma blóðskilunin tekur á líkamann.

Hann langar því að kaupa sér rafknúið hlaupahjól og safnar hann nú fyrir kaupunum inni á fjármögnunarsíðunni Karolina Fund.

Þar skrifar Þröstur:

„Ég er sjötíu og eins árs með nýrnabilun á lokastigi og er í reglulegri blóðskilun á Landspítalanum. Þarf að komast í meðferð fimm sinnum í viku.

Ég er með bíl í láni, en það er dýrt og mjög erfitt að finna bílastæði við Landspítalann og stundum get ég ekki keyrt heim eftir meðferð því það tekur á líkamann að vera í blóðskilun í fjóra klukkutíma. Þá þarf ég að ganga heim sem er ekki mjög löng leið en erfið stundum.

Mig langar því að safna fyrir rafknúnu hlaupahjóli sem myndi auðvelda mér þessar ferðir og vera líka umhverfisvænni og heilnæmari ferðamáti. Notað eða nýtt skiptir mig ekki máli.“

Hann segist hafa ákveðið að hefja þessa söfnun svo hann þurfi hvorki að nota bíl né akstursþjónustu borgarinnar. Þannig geti hann haldið „reisn og sjálfstæði eins lengi og mögulegt er síðustu ár ævi minnar“

Áhugasamir geta lagt söfnuninni lið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Árni Tómas er látinn
Fréttir
Í gær

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Í gær

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“
Fréttir
Í gær

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ
Fréttir
Í gær

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Faðir stúlku sem varð fyrir einelti skaut á bíl gerendanna – „Ég held að allir skilji reiði hans“

Faðir stúlku sem varð fyrir einelti skaut á bíl gerendanna – „Ég held að allir skilji reiði hans“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Starfsmaður á hjúkrunarheimili tók debetkort vistmanns og straujaði það 48 sinnum – Fór á spreðerí í Portúgal

Starfsmaður á hjúkrunarheimili tók debetkort vistmanns og straujaði það 48 sinnum – Fór á spreðerí í Portúgal