fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Pressan

Heilaskurðlæknir varar við hættunni af heyrnartólum – Fæstir átta sig á þessu

Pressan
Sunnudaginn 3. maí 2026 20:30

Það þarf að passa heyrnina.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski heilaskurðlæknirinn Jack Kruse segir að þráðlaus tæki, þar á meðal heyrnartól sem styðjast við Bluetooth, geti haft líffræðileg áhrif á líkamann.

Hann er ekki sá fyrsti sem viðrar áhyggjur af þessu því á áttunda áratugnum varaði bandaríski bæklunarskurðlæknirinn og vísindamaðurinn Robert O. Becker við hugsanlegum áhrifum manngerðra rafsegulsviða á fólk.

Economic Times segir að Becker hafi tekið þátt í líffræðilegum rannsóknum á vegum bandaríska flotans þar sem áhrif lágbylgju rafsegulsviða á fólk voru rannsökuð. Í ljós kom að dýr uxu hægar og sýndu merki um stress ef þau voru útsett fyrir slíkum bylgjum.

Í sumum tilraunum á fólki kom í ljós að magn blóðfitu jókst ef fólk var útsett fyrir rafsegulsviðum. Meira magn blóðfitu getur verið snemmbúið merki um hjarta- og æðasjúkdóma.

Kruse tekur undir áhyggjur Beckers og í hlaðvarpi Danny Jones og sagði að nútímatækni valdi því að fólk sé útsett fyrir „ekki náttúrulegum“ rafsegulsviðum.

„Allt þetta hefur líffræðileg áhrif,“ sagði hann að sögn Unilad og tók þráðlausa tækni sem dæmi.

2015 skrifuðu 247 vísindamenn frá 42 löndum undir ákall um að rafsegulsvið geti hugsanlega haft neikvæð áhrif á heilsu fólks.

Aðrir sérfræðingar telja að hættan sé lítil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Fyrir 2 dögum

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“