fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 5. maí 2026 19:00

Helga varð fyrir vonbrigðum með hvernig Ásdís hefur hagað sér.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helga Jónsdóttir, oddviti Vina Kópavogs, segir Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra hafa sýnt valdhroka og virðingarleysi fyrir hlutverki sínu, trúnaði og skyldum sem starfinu fylgja. Vinir Kópavogs bjóða ekki fram í ár en hvetur hún kjósendur til að nýta atkvæði sitt til þess að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að Ásdís haldi áfram sem bæjarstjóri.

„„Hvað ætlar þú að kjósa eftir reynslu kjörtímabilsins?“, spurði einn félaganna í Vinum Kópavogs mig um helgina. Ég hef áður fengið símtöl frá félögum úr þeim hópi sem velta því fyrir sér hvern þeir eigi að kjósa. Mitt svar hefur verið að nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram,“ segir Helga í aðsendri grein á Vísi í dag.

Stofnað gegn þéttingarstefnu meirihlutans

Framboðið Vinir Kópavogs buðu fram í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022 og hlutu góða kosningu. Það er 15,3 prósenta fylgi og tvo bæjarfulltrúa kjörna, næst mest allra framboða í kosningunum. Helsta áherslumálið var að berjast gegn þéttingarstefnu meirihlutans. Í mars var hins vegar tilkynnt að framboðið myndi ekki bjóða fram í vor.

„Ég hvet fólk til að kanna hvaða framboði sé best treystandi til að fylgja eftir áherslum Vina Kópavogs, grasrótarsamtaka sem spruttu upp til að gæta hagsmuna bæjarbúa gagnvart bæjaryfirvöldum. Ofurþétting byggðar, t.d. í miðbænum og á þéttingarreitum á Kársnesi, samfara yfirgangi við íbúa sem voru fyrir, var hvatinn að framboðinu,“ segir Helga. „Mörgum okkar fannst erfitt að horfa upp á þann skort á fagmennsku og virðingu fyrir því að ákvarðanir snúist um hagsmuni heildarinnar en ekki einstakra fjárfesta, sem einkenndi skipulagsmál í Kópavogi. Áform bæjaryfirvalda um að gefa einkaaðilum frelsi til niðurrifs, sprenginga og áralangra framkvæmda undir húsveggjum íbúa í miðbænum og víðar skelfdu.“

Virðingarleysi Ásdísar

Helga segist hafa í upphafi kjörtímabilsins verið full tilhlökkunar að leggja sitt af mörkum til bæjarins sem hafi fóstrað hana frá frumbernsku. Hún hafi reynslu úr stjórnun og vildi stuðla að aukinni fagmennsku og virðingu fyrir lögum og reglum.

Sjá einnig:

Ásdís bæjarstjóri harðlega gagnrýnd fyrir ásakanir um að BSRB hafi keypt rannsókn – „Hefur hún reynslu af því?“

„Ég á erfitt með að lýsa vonbrigðum síðustu fjögurra ára. Alvarlegt er að hafa sannreynt virðingarleysi bæjarstjóra fyrir hlutverki sínu og þeim trúnaði og skyldum sem starfinu fylgja,“ segir Helga og er harðorð í garð Ásdísar Kristjánsdóttur bæjarstjóra. „Bæjarstjóri á ekki að gæta þröngra flokks- eða sérhagsmuna heldur gegna hlutverki sínu í þágu allra bæjarbúa og allra bæjarfulltrúa, sem ráða bæjarstjórann. Bæjarstjóri á að vinna með bæjarráði að framkvæmdastjórn og fjármálastjórn bæjarins og sæta eftirliti þess. Bæjarstjóri á að tryggja að kjörnir bæjarfulltrúar fái gögn og greiningar til að taka rökstuddar ákvarðanir með góðri samvisku. Því miður heyrir til undantekninga að mál séu þannig undirbúin. Bæjarstjórinn forðast að upplýsa bæjarráð um mál í undirbúningi og leggur þau að jafnaði ekki fram fyrr en komið er að formlegri afgreiðslu.“

Framsókn láti þetta yfir sig ganga

Hún segir að dæmin um að fulltrúalýðræðið sé ekki virt í Kópavogi séu mýmörg. Kerfum hafi verið kippt úr sambandi, ekkert eftirlit haft með stjórnsýslunni og gæðastjórnun látin víkja. Lög séu brotin svo sem þegar fjárfestingaráætlanir eru ekki gerðar og ekki lagðir til viðaukar þegar farið er fram úr heimildum.

„Það skrítnasta er að bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins og aðrir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins en bæjarstjórinn láti þetta yfir sig ganga,“ segir Helga. „Með þeirra atkvæðum og á þeirra ábyrgð kemst bæjarstjórinn upp með að virða hlutverk bæjarráðs að vettugi. Henni er tamara að segja „ég“ en „við“ þegar hún hreykir sér af framfaraskrefum. Hún græjar þetta bara allt. Þá ætti hún raunar líka að segja: „ég tók við færri flóttamönnum frá Úkraínu en aðrir“ „ég læt foreldra án baklands borga hærri leikskólagjöld en annars staðar“ „ég tek ekki þátt í uppbyggingu almenna íbúðakerfisins eins og önnur sveitarfélög“ og “ég læt biðlista byggjast upp í velferðarkerfinu”.“

Búin að ákveða hvað hún kýs

Kópavogsbær skorist undan því að bera samfélagsbyrðar á við önnur stór sveitarfélög. Það sé ekki sá Kópavogur sem hún sé alin upp í eða vilji búa í.

„Til að varðstaða verði um grunngildi Vina Kópavogs þarf að koma núverandi meirihluta og bæjarstjóra frá völdum. Sjálf les ég þannig í spilin að framboð Samfylkingarinnar sé best til þess fallið að standa undir samfélagslegri ábyrgð og virða bæði fólk og viðfangsefni. Mitt atkvæði mun því fara til hennar,“ segir Helga að lokum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Þröstur er með nýrnabilun á lokastigi – Óskar eftir aðstoð til að halda reisn og sjálfstæði „síðustu ár ævi minnar“

Þröstur er með nýrnabilun á lokastigi – Óskar eftir aðstoð til að halda reisn og sjálfstæði „síðustu ár ævi minnar“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Heimir Már segir hægri menn býsnast yfir innflytjendum – „Staðið undir öllum hagvexti Íslands undanfarin 10-15 ár“

Heimir Már segir hægri menn býsnast yfir innflytjendum – „Staðið undir öllum hagvexti Íslands undanfarin 10-15 ár“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“
Fréttir
Í gær

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir
Fréttir
Í gær

Yoko Ono lét stöðva framleiðslu John Lennon bjórs

Yoko Ono lét stöðva framleiðslu John Lennon bjórs
Fréttir
Í gær

Sagði lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa beitt sér harkalega gegn ólögráða syni sínum – Dagbók lögreglunnar sagði allt aðra sögu

Sagði lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa beitt sér harkalega gegn ólögráða syni sínum – Dagbók lögreglunnar sagði allt aðra sögu