fbpx
Laugardagur 16.maí 2026
Pressan

„Heilaþoka“ eftir McDonald’s-máltíð talin mögulegur þáttur í banaslysi þriggja lögreglumanna

Pressan
Fimmtudaginn 7. maí 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Corrinne Blue, bandarískur hjúkrunarfræðingur, hefur verið ákærð fyrir þrjú manndráp af gáleysi eftir umferðarslys þar sem þrír lögreglumenn í Flórída létust.

Í rannsóknargögnum málsins er vísað til mats sérfræðinga sem telja mögulegt að þreyta eftir langa vinnuvakt og líkamlegt ástand eftir neyslu á fituríkri McDonalds-máltíð hafi haft sitt að segja um tildrög slyssins.

Corrinne, sem er 31 árs, var handtekin 30. apríl síðastliðinn vegna slyssins sem varð í nóvember 2024. Þrír lögreglumenn úr Palm Beach-sýslu létust þegar hún ók jeppabifreið sinni á lögreglumennina þar sem þeir voru við störf við vegkant.

Samkvæmt lögreglu höfðu lögreglumennirnir stöðvað vegna bilunar í einu ökutækja sinna og biðu eftir vegaaðstoð þegar slysið varð um klukkan 9:15 að morgni 21. nóvember 2024.

Lögreglumennirnir sem létust í slysinu.

Corrinne starfaði sem hjúkrunarfræðingur á Cleveland Clinic-sjúkrahúsinu í Weston í Flórída. Í handtökuskýrslu kemur fram að hún hafi unnið tólf tíma vakt og síðan verið um klukkustund lengur í vinnunni til að ljúka pappírsvinnu. Á leiðinni heim hafi hún stoppað á McDonald’s-veitingastað um hálftíma áður en slysið varð.

Í rannsóknargögnunum er vitnað til sérfræðings í mannlegri hegðun sem telur mögulegt að fitu- og kolvetnaríkur hafi valdið því sem kallast postprandial fatigue, eða eftir-máltíðarþreytu, sem er sögð tengjast skertri einbeitingu og einskonar heilaþoku.

Þá er einnig vitnað til taugalæknisins Richard Boehme, sem var fenginn til að leggja mat á möguleg áhrif þreytu og líkamlegs ástands á aksturinn. Samkvæmt skýrslunni taldi hann að vinnuþreyta og mögulegt ástand eftir neyslu á máltíðinni gætu hafa átt þátt í aksturshegðun Corrinne.

Ekki kemur þó fram í rannsóknargögnum að þessir þættir hafi verið staðfest orsök slyssins, heldur er um að ræða mögulegar skýringar sem sérfræðingar ræddu við rannsókn málsins.

Eiturefnarannsókn sýndi að hvorki áfengi né fíkniefni fundust í blóði hennar. Vitni á vettvangi sagði lögreglu að Blue hefði virst „afar þreytt“, en hún sjálf neitaði því að hafa verið þreytt eða að flýta sér.

Blue sagði lögreglu að hún hefði fylgt GPS-leiðsögn þegar hún reyndi að fara fram úr hægfara ökutæki og misst stjórn með þeim afleiðingum að hún ók á lögreglumennina þrjá. Lögreglan segir engin merki hafa fundist um að farsímanotkun hafi truflað hana við aksturinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Bað eða sturta? Sérfræðingur útkljáir deiluna um hvort er betra

Bað eða sturta? Sérfræðingur útkljáir deiluna um hvort er betra
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ellilífeyrisþegi handtekinn fyrir morð sem ekki var framið

Ellilífeyrisþegi handtekinn fyrir morð sem ekki var framið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 4 dögum

Stjörnukokkur dæmdur til dauða fyrir voðaverk á jólunum

Stjörnukokkur dæmdur til dauða fyrir voðaverk á jólunum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 5 dögum

Enginn mætti til að syrgja Ian Huntley

Enginn mætti til að syrgja Ian Huntley