fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
Pressan

Mikil áfengisneysla, með löngu millibili, getur haft áhrif á lifrina

Pressan
Laugardaginn 2. maí 2026 17:00

Áfengisneysla tekur sinn toll. Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eitt kvöld þar sem áfengis er neytt í miklu magni getur haft meiri áhrif á lifrina þína en þú heldur.

Helgunum fylgir stundum áfengisneysla. Kannski eitt glas eða bjór til að slaka á eftir erfiða viku og stundum fer þetta kannski aðeins lenga og mikið er drukkið. En sjaldnast finnst fólki þetta vera eitthvað sem skilur einhver spor eftir sig.

ScienceDaily segir að ný rannsókn vísindamanna við University of Southern California Keck Medicine sýni að það geti meira að segja haft mikil áhrif á líkamann að drekka mikið áfengi í einu, þótt það gerist sjaldan.

Rannsóknin, sem hefur verið birt í vísindaritinu Clinical Gastroenterology and Hepatology, bendir til að tengsl séu á milli alvarlegs tjóns á lifrinni og þess aðd rekka mikið áfengi öðru hvoru.

Vísindamennirnir beindu sjónum sínum að fitulifur en hún tengist oft ofþyngd, sykursýki og álíka sjúkdómum.

Þrátt fyrir að sjúkdómurinn sé ekki afleiðing áfengisneyslu, þá benda niðurstöður rannsóknarinnar til að drykkjumynstrið geti gert sjúkdóminn verri.

8.000 fullorðnir tóku þátt í rannsókninni sem náði yfir tímabilið frá 2017 til 2023.

Niðurstöðurnar sýna að fólk, sem drekkur mikið í einu, meira að segja bara einu sinni í mánuði, er mun líklegra til að hljóta varanleg mein á lifrinni en þeir sem dreifa áfengisneyslunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Dularfullur fundur í grískum helli

Dularfullur fundur í grískum helli
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Flestir nota USB-tengið bara fyrir rafmagn en það getur miklu meira en það

Flestir nota USB-tengið bara fyrir rafmagn en það getur miklu meira en það
Pressan
Í gær

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín
Pressan
Í gær

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt