fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Svona oft ættu karlar að fá morgunreisn í viku hverri miðað við aldur

Pressan
Laugardaginn 2. maí 2026 20:30

Allt er betra á morgnana. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú (ef þú ert karlkyns) ætlar ekki að byrja daginn með að eyða nokkrum klukkustundum í rúminu, þá getur verið óhentugt að glíma við fjörugan getnaðarlim í fullri reisn.

Þú þarft að fara á fætur, gera þig kláran fyrir vinnu og það væri auðvitað gott að komast að á klósettinu. En jafnaldrinn fer sínar eigin leiðir og hefur ákveðið að vera reistur svona snemma dags og það getur verið ákveðið vandamál.

En þú ættir kannski að taka vel á móti morgunreisninni því hún getur verið vísbending um hversu gott testesterónjafnvægi líkamans er.

Þetta var rætt í hlaðvarpinu Man Alive og þar sagði Joe Marler, sem er 35 ára fyrrum atvinnumaður í ruðningi, að það gerist æ sjaldnar að hann vakni með reistan liminn. „Það gerist stöku sinnum, en ekki nærri því eins oft og áður,“ sagði hann.

Stjórnandi hlaðvarpsins, læknirinn Jeff Foster, sagði þá að testósterónmagnið í líkama karla minnki með aldrinum og það geti haft áhrif á hversu oft þeir vakna með morgunreisn.

Hann benti á að þar sem þetta gerist þá megi reikna með að morgunreisn sé ekki eins algeng þegar aldurinn færist yfir og á yngri árum en ef snöggar breytingar verði þar á, geti það verið vísbending um heilsufarsvandamál.

Metro spurði Jeff út í hversu oft karlar ættu að reikna með að vakna með reistan liminn , miðað við aldur þeirra.

Hann sagði að unglingspiltar og karlmenn á þrítugsaldri ættu að vakna með morgunreisn flesta daga ef ekki alla.

Á fertugsaldri megi reikna með að það gerist í rúmlega 50% tilvika og á fimmtugs- og sextugsaldri sé það tvisvar til þrisvar í viku.

Þeir sem eru á sextugsaldri mega reikna með morgunreisn einu sinni eða tvisvar í viku að hans sögn.

Hann sagði að góð þumalputtaregla sé að ef maður muni ekki hvenær maður vaknaði síðast með reistan lim, þá sé  rétt að leita til læknis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt
Pressan
Í gær

Fjölskyldan hvarf 1958 – Fannst nýlega

Fjölskyldan hvarf 1958 – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 4 dögum

Missti son sinn og eiginmann þegar Titan kaftækið fórst – Lýsir því hvernig líkamsleifum þeirra var skilað heim

Missti son sinn og eiginmann þegar Titan kaftækið fórst – Lýsir því hvernig líkamsleifum þeirra var skilað heim
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fjórir handteknir í 43 ára gömlu morðmáli – hlaðvarp gegndi lykilhlutverki

Fjórir handteknir í 43 ára gömlu morðmáli – hlaðvarp gegndi lykilhlutverki
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna ættirðu ávallt að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina

Þess vegna ættirðu ávallt að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina