fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Pressan

Sviðsetti beina útsendingu á YouTube á meðan hann myrti þungaða kærustu sína

Pressan
Miðvikudaginn 3. júní 2026 12:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Írinn Stephen McCullagh hefur verið dæmdur í 31 árs fangelsi fyrir að myrða þungaða kærustu sína, Natalie McNally í Silverwood Grenn í Lurgan á Norður-Írlandi. Dómarinn í málinu tók fram að refsingin næði engan veginn að bæta fyrir þann skaða sem McCullagh olli er hann svipti kærustu sína lífi sem og ófæddan son hennar sem átti að fá nafnið Dean.

„Stephen McCullagh, þú hefur framið hrottalegt og glórulaust morð. Þú skipulagðir morðið með miskunnarlausri nákvæmni. Þú réðst á manneskju sem þú sagðist elska í ofsafenginni árás sem einkenndist af óhóflegu og tilefnislausu ofbeldi,“ sagði dómarinn sem benti á að morðið hafi verið framið með köldu blóði og að McCullagh hafi reynt allt sem hann gat til að komast upp með verknaðinn.

McCullagh hafði borið því við að hann væri með fjarvistarsönnun enda hefði hann verið að spila tölvuleiki í beinni útsendingu á YouTube þegar morðið átti sér stað. Það kom svo á daginn að beina útsendingin var fölsuð. McCullagh hafði í raun undirbúið sex klukkustunda upptöku fjórum dögum fyrir morðið. Eins reyndi McCullagh að koma sökinni yfir á fyrrverandi kærasta McNally.

Dómarinn gagnrýndi eins framkomu morðingjans í garð fjölskyldu hinnar látnu. McCullagh mætti í jarðarförina og bar sig þar illa. Honum var tekið opnum örmum og hann syrgði með ástvinum hennar, eða þóttist í það minnsta gera það.

Fyrir dómi var því lýst hvernig McNally lét lífið eftir hrottalegt ofbeldi. Hún hafði verið barin til óbóta, stungin þrisvar í hálsinn og hlotið alvarlega áverka á höfði. Eins var hún með áverka sem bentu til þess að hún hefði verið tekin kyrkingartaki. Þegar viðbragðsaðilar komu að líki hennar var blóð úti um allt og McNally, sem var komin 15 vikur á leið, lá með höfuðið ofan í hundaskál.

McCullagh hafði skipulagt sig vel. Hann tók sjálfan sig upp að spila tölvuleikinn Grand Theft Auto í um sex klukkustundir. Síðan tilkynnti hann kærustu sinni, vinum og öðrum að hann ætlaði að spila leikinn í beinni útsendingu á YouTube. Hann slökkti svo á síma sínum þegar hann hafði sett fölsku útsendinguna í gang, fór að heimili McNally og myrti hana með hrottafengnum hætti. Síðan fór hann aftur heim, slökkti á útsendingunni og sendi kærustu sinni skilaboð þar sem hann þóttist hafa áhyggjur af henni. Eftir viðeigandi tíma fór hann að heimili hennar og hringdi í neyðarlínuna.

Sjá einnig: Barnshafandi kona stungin til bana á heimili sínu – Lögreglan telur að hún hafi þekkt morðingjann

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Elti 14 ára pilt og skaut hann til bana: Sýknaður eftir að hafa borið fyrir sig sjálfsvörn

Elti 14 ára pilt og skaut hann til bana: Sýknaður eftir að hafa borið fyrir sig sjálfsvörn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir Buckinghamhöll hafa leynt sönnunargögnum gegn Andrew um árabil

Segir Buckinghamhöll hafa leynt sönnunargögnum gegn Andrew um árabil
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trump hellti sér yfir Netanyahu og sagði honum til syndanna – „Allir hata þig núna“

Trump hellti sér yfir Netanyahu og sagði honum til syndanna – „Allir hata þig núna“
Pressan
Fyrir 3 dögum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð