
Samkvæmt fréttum ástralskra fjölmiðla er Ahmed, 44 ára, sakaður um að hafa ráðist á aldraðan föður sinn á heimili hans í marsmánuði. Hann er meðal annars sagður hafa tekið hann hálstaki. Ahmed mun svara til saka fyrir dómi þann 29. júlí næstkomandi.
Í fréttum ástralskra fjölmiðla kemur fram að Ahmed hafi einnig verið úrskurðaður í nálgunarbann en samkvæmt skilmálum þess má hann hvorki nálgast né setja sig í samband við föður sinn. Hefur honum verið gert að halda sig í að minnsta kosti 100 metra fjarlægð frá heimili og vinnustað föður síns.
Ahmed var hylltur sem hetja eftir árásina í Bondi Beach þann 14. desember þegar hann tókst á við einn árásarmannanna og náði af honum skotvopni. Sá maður var síðar skotinn til bana af lögreglu, en hinn árásarmaðurinn bíður enn réttarhalda. Alls voru 15 vegfarendur skotnir til bana.
Í mars var Ahmed heiðraður fyrir framgöngu sína þegar bæjaryfirvöld á Bondi-svæðinu afhentu honum „lykil að borginni“ auk ævilangs aðgangs að strandaðstöðu á svæðinu.
Ahmed slasaðist alvarlega í árásinni og söfnuðust síðar um 2,6 milljónir ástralskra dala í söfnun sem haldin var fyrir hann, en upphæðin jafngildir vel yfir 200 milljónum króna.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fjölskyldumál Ahmeds rata í fjölmiðla. Tveir bræður hans voru fyrr á árinu ákærðir fyrir að hafa hótað honum vegna deilu um söfnunarféð sem safnaðist eftir árásina. Báðir hafa þeir neitað sök.