
Erkibiskup kaþólsku kirkjunnar í Washington, kardínálinn Robert McElroy, hefur leyst þekktan særingamann umdæmisins frá störfum eftir að særingamaðurinn viðraði umdeilda skoðun.
Særingamaðurinn heitir Stephen Rossetti og starfaði fyrir sjálfseignarstofnun sem kallast St. Michael Center for Spiritual Renewal. Á föstudaginn deildi Rossetti myndbandi á Facebook þar sem hann talaði um fljúgandi furðuhluti og tilvist geimvera.
„Sem særingamaður vildi ég vekja athygli á þessari hættu, en hún er sú að djöflum líkar að fela sig. Þeir vilja ekki að við vitum hvað þeir eru að gera því þeir ná betri árangri þegar við áttum okkur ekki á því. Þeir geta eiginlega smogið inn í hausinn á fólki og ráðskast með raunveruleikann til að fá fólk til að gera illt. Persónulega trúi ég því að líklega séu djöflar á ferðinni í mörgum, ef ekki flestum, tilkynningum um fljúgandi furðuhluti.“
Eins lýsti Rossetti því yfir að fólk geti trúað því að líf sé á öðrum plánetum án þess að það geri það að vondum kaþólikkum. Hann bætti þó við að persónulega trúi hann ekki á tilvist geimvera.
Þessar skoðanir Rossetti eru að mati kirkjunnar ekki í samræmi við það sem kaþólsk trú boðar um djöfulinn og djöfla.
Rossettu hefur nú birt yfirlýsingu þar sem hann biðst fyrirgefningar.
„Ég biðst fyrirgefningar á því að hafa ekki verið trúr kenningum kirkjunnar, sérstaklega í umræddu myndbandi um geimverur og hið djöfullega. Ég tel það mikilvægt að vera trúr kirkjunni og mun áfram leitast við að tryggja að allt sem ég og miðstöð mín gerum sé í samræmi við þá afstöðu.“