
Útskriftarferð Higginbotham-fjölskyldunnar breyttist í martröð í síðustu viku. Eldri sonar þeirra, hins tvítuga James „Watson“ Higginbotham, er nú saknað í Japan, en þangað var fjölskyldan komin, alla leið frá Alabama í Bandaríkjunum, til að fagna útskrift yngri sonarins sem var að ljúka gagnfræðaskóla með hæstu einkunn.
Seinast sást til Watson á Yamashina-lestarstöðinni í Kyoto. Hann var klæddur í hvítan stuttermabol með áletruninni: Save the Bees, í ljósfjólubláum buxum og Adidas-skóm. Samkvæmt foreldrum hans gæti hann hafa verið í uppnámi og mögulega hafi hann verið á leiðinni í létta göngu, en Watson er reyndur göngugarpur. Foreldrar hans birtu yfirlýsingu í gær þar sem þau báðu fólk um að vekja athygli á málinu í von um að þannig komist Watson í leitirnar.
„Í hvert sinn sem þið deilið einhverju á samfélagsmiðlum aukast möguleikinn á að einhver í Japan sjái það. Það er okkar helsta markmið, að fólk í Japan sjái andlitið á Watson svo það geti haft samband við okkur.“
Móðir Watsons, Nancy, segir að sonur hennar sé með hjarta úr gulli og það skipti fjölskylduna öllu að fá hann heim aftur heilan á húfi. Síminn hans hefur ekki verið tengdur við Internet eða símamöstur síðan á föstudaginn. Stormur hefur gengið yfir svæðið í vikunni en Nancy segir að Watson eigi að vera öllu vanur og sé nægilega reyndur til að hafa þetta af, sé hann villtur á gönguleiðinni. Lögreglan í Kyoto hefur sent út viðbragðsaðila vegna málsins en leit þeirra hefur til þessa ekki borið árangur. Nancy greindi frá því í nótt að leit væri hafin með leitarhundum ásamt þyrlum.