
Teymi vísindamanna á Ítalíu hefur uppgötvað að árþúsundum saman hefur ger vaxið í þörmum múmíunnar Ötzy-ísmannsins. Ötzi, sem var uppi fyrir rúmum 5.300 árum og er því eldri en pýramídarnir í Egyptalandi, lét lífið þegar hann var á gangi um Alpana á landamærum Austurríkis og Ítalíu. Hann var skotinn með ör í bakið og eftir það lá hann frosinn í ísnum þar til tveir þýskir göngumenn uppgötvuðu múmíuna árið 1991 í ítalska héraðinu Suður-Týról. Ötzi hefur nú í rúm 30 ár verið varðveittur í um sex gráðu frosti en þetta hefur gert vísindamönnum kleift að rannsaka múmíuna vandlega.
Nú hefur rannsókn verið birt í tímaritinu Microbiome þar sem fram kemur að vísindamenn hafi uppgötvað að bæði fornar sem og nútímaörverur þrífist í múmíunni. Það kom þeim hins vegar á óvart að finna ger í þörmum Ötzi. Það kemur svo líklega lesendum á óvart að vísindamennirnir ákváðu að nota gerið til að baka súrdeigsbrauð sem þeir svo borðuðu.
Um fjórar mismunandi gertegundir var að ræða en þær gátu lifað í þörmum múmíunnar þrátt fyrir frostið. Gerið uppgötvaðist þegar Otzi var afþíddur að hluta. Rannsóknir benda til þess að gerið hafi komist inn í líkama múmíunnar fljótlega eftir að Otzi lét lífið.
„Þetta ger hefur fylgt Ötzi á langri ferð hans í gegnum árþúsundir,“ sagði meðhöfundur rannsóknarinnar í yfirlýsingu. Það fyrsta sem vísindamönnunum datt í hug þegar þeir uppgötvuðu gerið var súrdeigsbrauð. Það tók þrjá mánuði að baka almennilegt brauð úr gerinu en að sögn vísindamannanna var brauðið virkilega gott. Nú íhuga þeir að brugga bjór úr gerinu.
Eldri rannsóknir hafa sýnt fram á að seinasta máltíð Ötzi var hreindýr, geitakjöt og hveiti. Hann var um 45 ára þegar hann lést og var vel á sig kominn. Hann bar exi úr kopar, boga, örvar og rýting.