

Jóhannes Kr. Kristjánsson blaðamaður minnist dóttur sinnar, Sigrúnar Mjallar, en í dag eru 16 ár liðin frá því að hún lést vegna ofskammts af læknadópi. Sigrún Mjöll var 17 ára.
„Þá er runninn upp dagurinn sem ég kvíði á hverju ári, dánardagurinn hennar Sissu minnar en í dag eru 16 ár frá því hún lést vegna ofskammts af læknadópi. Ég hugsa til hennar á hverjum degi og oft á dag og vil minnast hennar hér svo sagan hennar gleymist ekki því sagan hennar og minningarnar eru það eina sem við fjölskyldan eigum og höldum svo fast í. Raunveruleikinn sem við búum við er sá að Sigrún Mjöll hvílir í reit F-6-140 í Gufuneskirkjugarði.“
Í færslu sinni á Facebook segist Jóhannes hafa verið í rúmt ár við upptökur með lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í öllum deildum fyrir hlaðvarpsþáttaröðina Á vettvangi. Segist hann hafa kynnst fólkinu sem þar vinnur, náð útköllunum sem streyma inn á öllum tímum og verkefnunum sem þar eru unnin.
„Á þessu rúma ári hafa lögreglumenn farið í fjölda útkalla og stundum fleiri en eitt og fleiri en tvö á vakt þar sem inntaka lyfja er ástæða útkallsins. Og í hvert skipti fæ ég högg í hjartað því hér er brot úr skýrslu lögreglumanna sem komu á vettvang klukkan 11:24 fimmtudaginn 3. júní 2010 vegna inntöku;
„Sigrún lá þvert í rúminu, næst skápnum með höfuð upp við vegginn. Lá hún á bakinu og var sjúkraflutningamaður byrjaður á hjartahnoði er undirituð kom þarna inn. Skömmu síðar var Sigrún færð á gólfið þar sem endurlífgun var framkvæmd. Var hún klædd í gráleitan brióstahaldara og svartar þunnar buxur. Útlimir Sigrúnar voru kaldir viðkomu og líkami hennar farin að blána. Lögreglumaður 0129 tók eftir sprautuförum í hægri olnbogabót.“
Segist Jóhannes munu greina betur frá í þáttunum Á vettvangi sem fara í loftið í sumar.
„Ljósmyndin af sjúkrabílunum sem fylgir er fyrir utan vettvanginn þar sem Sissa mín lést. Ljósmyndina tók gamall kennari minn sem hafði ekki hugmynd um hvað væri að gerast á þessari stundu. Hin ljósmyndin er tekin í bátsferð þar sem Sissa passaði uppá sjóveikan bróður sinn og var sjálf orðin sjóveik.
Við þá sem eiga ástvini sem eru í neyslu fíkniefna vil ég segja; ekki gefast upp því það er alltaf von.“