fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Pressan

Verður fljótandi borg að veruleika? – Hýsir 80 þúsund manns með risastórum íþróttavelli, söfnum og vatnsrennibrautagarði

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 3. júní 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áætlanir eru um að skapa fyrstu „fljótandi borg í heimi“ sem yrði knúin kjarnorku og hefði rúm fyrir 80.000 manns. Hugmyndir um svokallað Frelsisskip (e. Freedom Ship) hafa verið til frá tíunda áratugnum en þær hafa nú verið endurvaktar,  að þessu sinni undir stjórn Rogers Gooch, forstjóra Freedom Cruise Line, sem sagði við Telegraph : „Við erum mjög viss um að við getum sett þetta saman, en að nýta fjármagn er lykilatriðið.“

Ef úr rætist myndi risaskipið vera stærra en skemmtiferðaskip sem framleitt eri af fyrirtækjum eins og Royal Caribbean eða Carnival Cruise Line. Hugmyndir um farþegarými upp á 80.000 farþega myndi vera miklu meiri en tveggja milljarða dollara skipið Icon of the Seas frá Royal Caribbean , sem rúmar allt að 7.600 gesti og 2.350 áhafnarmeðlimi.

Áætlaður kostnaður við Frelsisskipið er 16,16 milljarðar dollara, þar verða heimili fyrir um 50.000 manns og pláss fyrir 10.000 ferðamenn, og 20.000 manna áhöfn myndi þjóna þessum aðilum.

„Frelsisskipið er hugsað sem varanleg færanleg borg á hafi úti, hönnuð fyrir langtíma búsetu frekar en skammtímaferðir,“ segir Freedom Cruise International. „Þetta er ekki skemmtiferðaskip og ekki skilgreint af áfangastöðum eða ferðaáætlunum.“

„Í staðinn er það skipulagt sem stöðugt, sjálfstætt borgarumhverfi sem siglir stöðugt umhverfis hnöttinn og styður jafnframt við daglegt líf.“

Á þaki yrði þyrlupallur fyrir átta slíkar.

Risaskipið hefði alla þætti nútímaborgar allt frá skólum og háskólum til verslana, banka og næturklúbba. Og þar yrði tveggja hæða matsölustaður, sem fullnægir smekk kröfuhörðustu matgæðinganna. Skipið er 1,6 km að lengd og gestir gætu nýtt sér framúrstefnulegt sporvagnakerfi sem myndi tengja saman mismunandi svæði.

Íþróttavöllur með 15.000 sætum, vatnsleikjagarður, almenningsgarðar, ráðstefnumiðstöð, tónlistarhöll og tvö söfn eru meðal þeirra þæginda sem lögð eru til.

„Við byrjuðum með þá hugmynd að skipið ætti ekki að vera einlit hönnun heldur sjónrænt þægilegt, svo við mýktum alla kanta,“ sagði Gooch.  „Við viljum líka að það andi, svo við höfum lagt mikið á okkur til að leyfa göngustíga og græn svæði.“

„Afþreying um borð í Frelsisskipinu er ekki hönnuð til að vera einstök,“ segja stuðningsmenn hugmyndarinnar. „Hún á að vera kunnugleg, aðgengileg og ómerkileg í besta skilningi, venjulegur hluti af lífinu innan borgar sem færist úr stað.“ Kafarar þyrftu ekki einu sinni að yfirgefa skipið þar sem þar væri risastórt fiskabúr.

Skipið, sem knúið væri afkjarnorkueldsneyti, yrði of stórt fyrir hvaða bryggju sem er á jörðinni og myndi því vera áfram á alþjóðlegum hafsvæðum. Talið er að það myndi fara hringinn í kringum jörðina á tveggja til þriggja ára fresti. Farþegar yrðu fluttir til og frá landi með flota ferja og átta þyrlupallar yrðu efst á skipinu.

Hugmyndir að Frelsisskipinu voru fyrst kynntar af verkfræðingnum Norman Nixon á tíunda áratugnum en hann lést árið 2012 og áætlanirnar voru settar á hilluna.

Það gæti tekið allt að fjögur ár að smíða skipið en Gooch lagði til að fyrstu íbúarnir gætu flutt um borð í skipið á meðan framkvæmdir færu fram. Hann þarf þó enn fjármagn til að láta drauminn rætast.

En Sridev Mookerjea, verkefnastjóri hjá Blossom Group í Singapúr, sagði við Telegraph: „Ég tel að með viðleitni Rogers, þolinmæði og löngun til að láta þetta takast, séu engin takmörk sett. Þetta er frábær hugmynd og ég mun leggja allt mitt af mörkum til að láta hana verða að veruleika.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Elti 14 ára pilt og skaut hann til bana: Sýknaður eftir að hafa borið fyrir sig sjálfsvörn

Elti 14 ára pilt og skaut hann til bana: Sýknaður eftir að hafa borið fyrir sig sjálfsvörn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir Buckinghamhöll hafa leynt sönnunargögnum gegn Andrew um árabil

Segir Buckinghamhöll hafa leynt sönnunargögnum gegn Andrew um árabil
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trump hellti sér yfir Netanyahu og sagði honum til syndanna – „Allir hata þig núna“

Trump hellti sér yfir Netanyahu og sagði honum til syndanna – „Allir hata þig núna“
Pressan
Fyrir 3 dögum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð